Beint í efni

Sal­on­hljóm­sveit­inni L'am­our fou í sal Tón­list­ar­skóla Garða­bæj­ar

Viðburðir

Tónlistarskóli Garðabæjar

miðvikudagur, 17. júní 2026 kl. 20:00

Menning í Garðabæ býður uppá tónleika með Salonhljómsveitinni L'amour fou í sal Tónlistarskóla Garðabæjar að kvöld 17. júní.

Sveitin var stofnuð árið 1999 og samanstendur af þeim Hrafnhildi Atladóttur fiðluleikara, Guðrúnu Hrund Harðardóttur víóluleikara, Hrafnkatli Orra Egilssyni sellóleikara, Gunnlaugi Torfa Stefánssyni kontrabassaleikara og Tinnu Þorsteinsdóttur píanóleikara.

Sveitin gaf út hljómplötuna Íslensku lögin árið 2005 sem inniheldur gömul íslensk dægurlög í útsetningum Hrafnkels Orra fyrir salonhljómsveit. Platan hefur verið ein mest leikna plata Rásar 1 allar götur síðan. L'amour fou lék í áramótaþætti Sjónvarpsins árið 2010, Álfareiðinni, sem tilnefndur var til Edduverðlaunanna 2011 sem menningar- og lífstílsþáttur ársins. Á síðustu árum hefur sveitin m.a. komið fram á Sumartónleikum að Kvoslæk, í Salnum í Kópavogi á Hamraborg Festival og í tónleikaröð RVK Bruggfélags í Tónabíói. L’amour fou vinnur nú að nýrri hljómplötu, Fleiri íslensk lög sem koma mun út í haust.

Tónleikarnir eru um klukkustund að lengd og aðgangur ókeypis.

Salonhljómsveitinni L'amour fou í sal Tónlistarskóla Garðabæjar - Garðabær