Beint í efni

Sögu­leg­ar bygg­ing­ar í Garða­bæ með Pétri H. Ár­manns­syni

Viðburðir

Sveinatunga

sunnudagur, 25. október 2026 kl. 13:00

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Fyrirlesturinn fer fram í Sveinatungu, Garðatorgi 7.

Garðabær á sér mun ríkulegri byggingararf en ætla mætti í fljótu bragði. Í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar mun Pétur H. Ármannsson arkitekt fjalla um nokkrar sögulegar byggingar í Garðabæ frá ólíkum tímaskeiðum sem vitna um þróun byggðar og samfélags á ólíkum tímaskeiðum í sögu bæjarfélagsins. Sum þessara verka þóttu tíðindum sæta í íslenskri byggingarlist á sínum tíma og standa enn í dag sem sem vitnisburður um það besta í verkkunnáttu og listfengi genginna kynslóða.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Fyrirlesturinn fer fram í Sveinatungu, Garðatorgi 7.