Beint í efni

Sum­ar­nám­skeið - Heim­ur­inn heima

Viðburðir

Hönnunarsafn Íslands

þriðjudagur, 23. júní 2026 kl. 13:00
- föstudagur, 26. júní 2026 kl. 16:00

Hönnunarsafn Íslands

Hvernig myndir þú hanna heimili fyrir geimfara sem á 3 kanínur fyrir gæludýr og elskar að baka í frístundum?!

Á sumarnámskeiði fá 9-12 ára krakkar að kynnast aðferðum í innanhússarkitektúr og húsgagnahönnun. Hver þátttakandi eignast módel af húsi sem er hannað inn í fyrir ímyndaðan íbúa með tilliti til persónuleika hans og þarfa.

Námskeiðið miðar að því að setja sig í spor hönnuðar, virkja sköpunarkraftinn og ímyndunaraflið, hugsa með höndunum, sjá möguleika, kynnast skala og módelgerð.

  • Leiðbeinandi: Auður Ösp Gilsdóttir
  • Dagsetningar: 23.-26. júní
  • Tími dags: 13:00-16:00
  • Staðsetning: Hönnunarsafn Íslands, 2. hæð
  • Verð: 27.500 kr
  • Aldurshópar: 9-12 ára

Skráning fer fram á Abler.

Sumarnámskeið - Heimurinn heima - Garðabær