Beint í efni

Tákn með tali for­eldra­nám­skeið

Viðburðir

Sveinatunga

miðvikudagur, 9. desember 2026 kl. 19:00 - 20:30

Kristín Th. Þórarinsdóttir talmeinafræðingur stendur fyrir námskeiði í tákn með tali (TMT) fyrir foreldra í Garðabæ.

Tákn með tali er tjáskiptaaðferð sem nýtist vel öllum börnum; sérstaklega þeim sem glíma við tal- og/eða málerfiðleika, börnum sem eru sein í tali eða börnum með fjölbreyttan tungumálabakgrunn.

Námskeiðið er ætlað foreldrum og aðstandendum. Námskeiðið verður haldið miðvikudaginn 9. desember kl. 19.00 - 20.30, í Sveinatungu Garðatorgi 7.