Þór Breiðfjörð og jazztríó
Viðburðir
Tónlistarskóli Garðabæjar
miðvikudagur, 2. desember 2026 kl. 12:15

Þór Breiðfjörð blæs Garðbæingum jólaanda í brjóst með djasskenndri Tónlistarnæringu.
Með í för eru hinir frábæru hljóðfæraleikarar Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Jón Rafnsson á kontrabassa og Kjartan Valdemarsson á píanó. Á efnisskránni eru ástsæl jólalög, frumsamin jólalög eftir Þór og eitt glænýtt jólalag eftir þá Kjartan og Þór.
Aðgangur er ókeypis, tónleikarnir eru í boði Menningar í Garðabæ.