Tónlistarnæring - Bryndís Guðjónsdóttir og Matthildur Anna
Tónlistarskóli Garðabæjar
miðvikudagur, 4. nóvember 2026 kl. 12:15

Íslensk og þýsk ljóð ásamt aríum eftir R. Strauss, Mozart og Offenbach eru á dagskrá hjá sópransöngkonunni Bryndísi Guðjónsdóttur og Matthildi Önnu Gísladóttur píanóleikara sem veita gestum Tónlistarnæringu nóvembermánaðar. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Íslensk og þýsk ljóð ásamt aríum eftir R. Strauss, Mozart og Offenbach eru á dagskrá hjá sópransöngkonunni Bryndísi Guðjónsdóttur og Matthildi Önnu Gísladóttur píanóleikara sem veita gestum Tónlistarnæringu nóvembermánaðar. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Bryndís Guðjónsdóttir lauk meistaraprófi í óperusöng árið 2021 í Mozarteum tónlistarháskólanum í Salzburg en hún hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir söng sinn, m.a. Grímuna árið 20215 fyrir hlutverk greifynjunnar í Brúðkaupi Fígarós. Þá hefur hún einnig unnið til verðlauna á Spáni, Ítalíu og Tékklandi. Bryndís kemur reglulega fram í óperuhúsum og tónleikasölum víða um Evrópu meðal annars í Dresden, Essen, Dortmund, Darmstadt, Chemnitz, Kiel, Kassel, Madrid, Nürnberg, Munich, Martina Franca, Salzburg, Stuttgart, Sevilla, Stralsund, Prague, Reykjavík, Róm og Vilnius.
Matthildur Anna Gísladóttir lauk bakkalárnámi í píanóleik frá Listaháskóla Íslands. Þaðan láleiðin í Royal Academy of Music í London þar sem hún lauk meistaranámi í meðleik árið 2009. Árið 2014 lauk Matthildur meistaranámi í óperuþjálfun frá Royal Conservatoire ofScotland (RCS). Veturinn 2014-15 starfaði Matthildur sem óperuþjálfi hjá RCS. Matthildur hefur komið fram á fjölda tónleika hérlendis sem erlendis og komið að óperuuppsetningum, m.a. hjá Kammeróperunni, Óperudögum, Íslensku óperunni, British Youth Opera, RCS, Scottish Opera og Lyric Opera Studio í Weimar. Matthildur starfar nú við tónlistardeild Listaháskóla Íslands