Beint í efni

Tón­list­ar­nær­ing - Odd­ur Arn­þór og Hrönn Þrá­ins­dótt­ir flytja Brah­ms og Jór­unni Viðar

Viðburðir

Tónlistarskóli Garðabæjar

miðvikudagur, 2. september 2026 kl. 12:15 - 12:45

Fyrstu Tónlistarnæringu haustsins færa okkur baritónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari.

Á efnisskránni eru lög eftir Brahms og Jórunni Viðar. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Oddur hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2018 sem söngvari ársins en hann var útnefndur bjartasta vonin 4 árum áður. Oddur lærði í Söngskólanum í Reykjavík og í Mozarteum í Salzburg. Oddur hefur sungið mörg hlutverk í Íslensku Óperunni s.s. Don Giovanni í samnefndri óperu Mozart og Rakarann í samnefndri óperu Rossinis. Þá hefur hann sungið í allmörgum óperuhúsum í Þýskalandi og Hollandi. Oddur hefur einnig komið víða fram sem ljóða- og óratóríusöngvari svo sem í Garnier-óperunni í París og á Britten - Pears hátíðinni í Aldeburgh, Englandi.

Hrönn er einn liðtækasti meðleikari íslenskra söngvara um árabil en hún var nemandi Jónasar Ingimundarsonar um árabil. Hrönn lauk framhaldsnámi frá Tónlistarháskólanum í Freiburg og Stuttgart og sérhæfði sig í meðleik ljóðasöngs.