Beint í efni

Upp­skeru­há­tíð Sum­ar­lest­urs

Viðburðir

Bókasafn Garðabæjar

laugardagur, 5. september 2026 kl. 12:00 - 13:00

Uppskeruhátíð Sumarlesturs fyrir lestrardrekana okkar

Uppskeruhátíð Sumarlesturs verður haldin laugardaginn 5.september kl. 12:00 í Bókasafni Garðabæjar, Garðatorgi 7. Hinn óviðjafnalegi Gunnar Helgason rithöfundur með meiru mun mæta á svæðið, skemmta með upplestri úr nýjustu bók sinni og gefa öllum duglegum lestrardrekum glaðninga. Einnig verða dregnir út þrír lestrardrekar sem fá bók í verðlaun. Gómsæt lestrarkaka verður svo í boði fyrir alla og hægt verður að kríta á torginu. Fögnum saman glæsilegum lestrarárangri!