Veggir og girðingar
Veggir og girðingar á lóðum eru meðal annars nýtt til að mynda skjól og rými og hafa mikil sjónræn áhrif á götumynd bæjarins. Garðabær hefur gæði og fegurð bæjarmyndarinnar að leiðarljósi.
Leyfi vegna veggja og girðinga
Ef veggir og girðingar eru of há geta þau dregið úr öryggi, varpað skugga og skapað fráhrindandi umhverfi. Veggir, girðingar og gróður á lóðamörkum að götu mega ekki hindra sjónlínur vegfarenda. Einnig er mikilvægt að sýn á gatnamótum sé ekki hindruð vegna umferðaröryggis.
Mikilvægt er að sækja um leyfi til Garðabæjar ef veggir og girðingar liggja að bæjarlandi, þar með talið götum og stígum.
Alltaf þarf samþykki aðliggjandi lóðarhafa ef reisa á vegg eða girðingu við lóðamörk. Þetta er samanber ákvæði byggingarreglugerðar. Íbúum er ráðlagt að þinglýsa samkomulaginu.
Skil og innihald samkomulags
- Afrit: Skila þarf inn afriti af þinglýstu samkomulagi til byggingarfulltrúa.
- Hæð: Í yfirlýsingunni skal koma skýrt fram hver hæð veggjar eða girðingar er mæld yfir landi.
Samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar
Lóðamörk að húsagötu
Garðabær, sem landeigandi, samþykkir almennt eftirfarandi á lóðamörkum sem snúa að húsagötu:
- Veggir og girðingar: Mega vera allt að 1,20 metrar á hæð.
- Stoðveggir: Mega vera allt að 0,8 metrar á hæð.
- Sjónlínur: Alltaf skal gæta að og tryggja góðar sjónlínur við innkeyrslur og horn.
Lóðamörk að opnum svæðum, stígum og safngötum
Garðabær samþykkir almennt eftirfarandi á lóðamörkum að þessum svæðum:
- Veggir og girðingar: Mega vera allt að 1,50 metrar á hæð.
- Stoðveggur og fallvörn: Samanlögð hæð stoðveggja og fallvarna má vera allt að 2 metrar.
- Gróðurhólf: Mælt er með því að brjóta upp veggi og girðingar að götum og stígum með gróðurhólfum.
- Sjónlínur: Alltaf skal tryggja góðar sjónlínur við innkeyrslur og horn á umferðarleiðum.
Stoðveggir á lóðum
Eftirfarandi stærðir eru almennt leyfðar fyrir stoðveggi sem standa inni á sjálfri lóðinni:
- Stoðveggir: Mega vera allt að 1,20 metrar á hæð. Fallvarnir á þeim eiga að vera úr léttu byggingarefni.
- Stoðveggur og skjólveggur: Ef skjólveggur er byggður ofan á stoðvegg má samanlögð hæð þeirra tveggja vera allt að 1,80 metrar.
Hvenær þarf byggingarleyfi eða samþykki?
- Sækja skal um byggingarleyfi fyrir gerð og frágangi veggja eða girðinga sem eru hærri en 1,80 metrar. Ef deiliskipulag kveður á um annað gilda ákvæði þess. Umsóknin getur eftir aðstæðum kallað á skipulagsferli.
- Ef girðing eða veggur stendur nálægt lóðarmörkum að opnum svæðum, stígum eða götu (bæjarlandi) og er hærri en sem nemur fjarlægð frá mörkunum þarf að fá samþykki byggingarfulltrúa.
- Ef veggir, stoðveggir eða girðingar eru steypt skal tilkynna það og skila teikningum inn til byggingarfulltrúa.
Hvernig er hæðin mæld?
Við skilgreiningu á hæð veggjar eða girðingar er miðað við land sem víkur ekki verulega frá hæðartölum mæliblaðs á lóðarmörkum. Ef hæðarblað er ekki til staðar er miðað við það land sem er fyrir á staðnum.
Landhæð á lóðamörkum er sýnd á hæðarblöðum.
- G = hæð við götu.
- L = hæð á lóðarmörkum.
Hæðarblöð eru aðgengileg á kortavef Garðabæjar. Hæðartölur eru bindandi nema annað sé tekið fram á hæðarblaði eða í deiliskipulagi. Lóðarhafar geta óskað eftir því í sameiningu að vikið sé frá L- tölum.
Deiliskipulag og reglur
Ef deiliskipulag í viðkomandi hverfi kveður á um aðrar hámarkshæðir og útfærslur veggja og girðinga en er í samþykkt Garðabæjar, þá gildir deiliskipulagið.
Á kortavef Garðabæjar má finna deiliskipulög sem eru í gildi. Í valmynd til hægri undir Skipulag hakar þú við Deiliskipulag.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.