Byggingarleyfi
Til að byggja eða breyta húsnæði þarf að fá byggingarleyfi hjá byggingarfulltrúa Garðabæjar. Leyfið er veitt þegar öllum skilyrðum er fullnægt og þá fyrst er óhætt að hefjast handa við framkvæmdir.

Hvenær þarf byggingarleyfi?
Hvenær þarf ekki byggingarleyfi?
Minniháttar framkvæmdir þurfa ekki byggingarleyfi en sumar þeirra þarf þó að tilkynna áður en verkið hefst. Þær þurfa alltaf að vera í samræmi við deiliskipulag og byggingarreglugerð.
Sumar minni framkvæmdir eru undanþegnar byggingarleyfi og tilkynningarskyldu svo framarlega þær séu í samræmi við skipulag.
Dæmi um slíkar framkvæmdir:
- Pallar og annar frágangur við jörðu.
- Viðhald innanhúss, á lóð, girðingu, bílastæði og innkeyrslu.
- Skjólveggir og girðingar innan vissra marka.
- Smáhýsi sem er ekki ætlað til gistingar eða búsetu, að hámarki 15 m².
- Uppsetning móttökudiska, allt að 1,2 m að þvermáli, vegna móttöku útsendinga útvarps eða sjónvarps eða móttökuloftnets.
Nánari upplýsingar má finna í byggingarreglugerð 2.3.5. gr.
Dæmi um tilkynningarskyldar framkvæmdir:
- Nýklæðning þegar byggðrar mannvirkja.
- Tjaldhýsi sem nota skal í atvinnustarfsemi.
- Stöðuhýsi sem eiga að standa lengur en 4 mánuði.
- Heitir og kaldir pottar eða laugar í görðum.
- Lítilsháttar breyting á burðarvirki eða brunahólfun sem nemur minna en 5% af hjúpfleti burðarhluta, þó aldrei meira en 5 m².
- Breytingar á lögnum.
Nánari upplýsingar má finna í byggingarreglugerð 2.3.6. gr.
Tilkynna framkvæmd
Eftir að tilkynning berst staðfestir byggingarfulltrúi að framkvæmdin sé í samræmi við byggingarreglugerð og skipulag. Ekki er heimilt að hefja framkvæmdir án staðfestingar.
Fylgigögn með tilkynningu
- Aðaluppdrættir. Ef breytingin er á mannvirki sem er þegar byggt og aðaluppdrættir eru til staðar er nóg að skila þeim hluta aðaluppdrátta sem sýna breytingarnar.
- Greinargerð löggilds hönnuðar.
Ef byggingarfulltrúi hefur ekki gert athugasemdir innan 3 vikna frá móttöku tilkynningar telst hún staðfest og þá er heimilt að hefja framkvæmdir.
Fyrirspurn um byggingarleyfi
Gott er að athuga hvort byggingarleyfi þarf fyrir áætluðum framkvæmdum og hvort þær samræmist deiliskipulagi.
Nýbyggingar og breytingar
- Tölvupóstur: Þú getur sent tölvupóst á bygg@gardabaer.is. Því skýrari sem fyrirspurnin er, því skýrari svör fást.
- Símatími: Þú getur pantað símatíma hjá byggingarfulltrúa með því að hringja í þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500.
Deiliskipulag
Þú getur kannað hvort framkvæmd samræmist gildandi deiliskipulagi með því að senda tölvupóst á skipulag@gardabaer.is og láta uppdrætti fylgja með í viðhengi.
Ef framkvæmdir krefjast breytingar á deiliskipulagi fylgir því gjald, grenndarkynning og 6–8 vikna bið.
Embætti byggingarfulltrúa
Byggingarfulltrúi hefur umsjón og eftirlit með byggingum og mannvirkjum í Garðabæ. Meginhlutverkið er að tryggja að byggingar séu öruggar, heilsusamlegar og í samræmi við lög og reglur.
Starfsfólk embættisins sinnir fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal:
- Yfirferð umsókna og aðaluppdrátta.
- Útgáfu byggingarleyfa til að byggja, breyta eða rífa mannvirki.
- Eftirliti og úttektum á framkvæmdatíma.
- Skráningu fasteigna og lóða.
- Veita húsbyggjendum og hönnuðum leiðbeiningar um ferlið og tæknileg atriði.
Byggingarleyfi er útgefið af byggingarfulltrúa eftir að byggingaráform hafa verið samþykkt og öllum gögnum skilað inn.
Umsókn um byggingarleyfi
Allar skráningar hönnuða, byggingastjóra og iðnmeistara eru í Þjónustugáttinni.
01
Sækja um byggingarleyfi
Eigendur og hönnunarstjóri í þeirra umboði geta sótt um byggingarleyfi í Þjónustugátt Garðabæjar þegar uppdrættir af verki eru fullkláraðir.
Með umsókninni á að fylgja:
- aðaluppdrættir
- tilkynning um hönnunarstjóra
- lýsing á framkvæmd
- samþykki meðeigenda ef við á
02
Umsókn tekin fyrir
Starfsfólk skipulags- og byggingarfulltrúa fer yfir umsóknina. Samþykki byggingarfulltrúa er staðfest af bæjarráði. Ef gögn vantar eða eru ófullnægjandi er umsækjandi látinn vita.
- Fundað er á hverjum fimmtudegi um mál sem komu inn vikuna áður.
- Ef umsókn er samþykkt fær umsækjandi tölvupóst með upplýsingum um næstu skref, gátlista um hverju þarf að skila inn og gjöld.
- Ef einhverjar athugasemdir eru fær umsækjandi tölvupóst um að skila inn leiðréttingum eða viðbótum. Ef það berst ekki innan 12 mánaða er teikningum fargað og málið fellt niður.
- Ef framkvæmdir kalla á óverulegar breytingar á deiliskipulagi þarf að halda grenndarkynningu áður en byggingarleyfi er veitt.
03
Veiting byggingarleyfis
- Eigandi fær kröfu í netbanka um byggingargjöld. Greiða þarf gjöldin áður en byggingarleyfi er gefið út.
- Hönnuður þarf að skila inn aðaluppdráttum og sérteikningum í gegnum Þjónustugáttina.
- Eigandi eða hönnunarstjóri þurfa að skrá byggingarstjóra á verkið.
- Byggingarstjóri staðfestir sig og skráir iðnmeistara á verkið.
- Iðnmeistarar samþykkja ráðningu áverk.
- Umfangsflokkur 2. og 3: Byggingarstjóri þarf að skila lífsferilsgreiningu (LCA) og senda staðfestingu á bygg@gardabaer.is.
04
Áfangaúttektir
- Byggingarstjórar framkvæma áfangaúttektir í mannvirkjaskrá.
- Byggingarleyfi fellur úr gildi hafi framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá útgáfu þess. Framkvæmd telst hafin við fyrstu áfangaúttekt.
05
Lokaúttekt
- Þegar framkvæmd er lokið sækir byggingarstjóri um lokaúttekt í Þjónustugáttinni.
- Byggingarfulltrúi tekur út verkið.
- Byggingarstjóri og eigandi fá send lokaúttektarvottorð.
06
Tilbúið húsnæði!
Úttektir
Byggingarstjórar framkvæma áfangaúttektir og tilkynna til mannvirkjaskrár.
Byggingarfulltrúi tekur út byggingar á öllum byggingarstigum. Beiðnum um stöðuúttektir og skil á öðrum gögnum (til dæmis brunatryggingu fyrir fokheldisúttekt (BS2) á að skila í gegnum Þjónustugátt Garðabæjar.
Ekki má taka húsnæði í notkun fyrr en kröfur öryggisúttektar hafa verið uppfylltar og byggingarfulltrúi hefur gefið út öryggisúttektarvottorð.
Lokaúttekt á að fara fram innan þriggja ára frá dagsetningu öryggisúttektarvottorðs. Leyfilegt er að framkvæma öryggis-og lokaúttekt samtímis. Beiðnir um öryggis- og lokaúttektir eru sendar í gegnum Þjónustugátt Garðabæjar.
Til að fá nánari upplýsingar um úttektir getur þú sent tölvupóst á bygg@gardabaer.is.
Umfangsflokkar
Þegar sótt er um byggingarleyfi fyrir mannvirki í umfangsflokki 2 eða 3 þarf að skila lífsferilsgreiningu (LCA) með umsókn.
Minni og einfaldari framkvæmdir. Hér er lítil hætta á tjóni og ekki er gert ráð fyrir að fólk hafi þar fasta búsetu.
- Hvað á við? Bílskúrar, frístundahús, geymslur, gestahús, landbúnaðarbyggingar og viðbyggingar við eldri hús. Einnig niðurrif mannvirkja.
- Stærðarmörk: Gildir fyrir byggingar sem eru minni en 2000 fermetrar og lægri en 4 hæðir.
Hefðbundnar, meðalstórar byggingar þar sem fólk býr eða starfar. Hér eru gerðar ríkari kröfur en í flokki 1.
- Hvað á við? Algengt íbúðarhúsnæði (eins og einbýlishús og fjölbýlishús), gistiheimili, atvinnuhúsnæði og iðnaðarhúsnæði.
- Forsendan: Miðað er við að fólk geti haft þar fasta búsetu og geti bjargað sér sjálft út ef hætta skapast.
Í þessum flokki eru stórar, flóknar eða samfélagslega mikilvægar byggingar. Hér gilda ströngustu kröfurnar um öryggi og hönnun.
- Hvað á við? Skólar, verslunarmiðstöðvar, íþróttamannvirki, sjúkrahús og hjúkrunarheimili.
- Forsendan: Byggingar þar sem mikill fjöldi fólks kemur saman eða þar sem fólk dvelur sem getur ekki bjargað sér sjálft (eins og á sjúkrahúsum).
Heimæð og stálvirki
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.