Winter holiday activities

The winter break will be held in kindergartens and primary schools in Garðabær from February 23rd to 26th. There are lots of fun things to do during the school holidays, and here are some ideas.
Dagana 23. - 26. febrúar verður vetrarfrí í leik- og grunnskólum í Garðabæ. Það er ýmislegt skemmtilegt hægt að gera sér til skemmtunar í skólafríinu og hér koma nokkrar hugmyndir.
Fjölbreytt dagskrá á bókasafninu
Það verður eitt og annað skemmtilegt í boði á bókasafninu í vetrarfríinu, til dæmis legóstund , ratleikir, perlusmiðja og bíósýning. Á bóksafninu eru svo alltaf frábært safn af góðum bókum, myndir til að lita, tafl og notalegt umhverfi.

Heimsókn á Hönnunarsafnið
Það er ávallt góð hugmynd að heimsækja Hönnunarsafnið. Þessa stundina eru vöruhönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir hjá Fléttu með vinnustofuna sína í safninu. Það sem einkennir verk þeirra eru sköpunar- og leikgleði í bland við gagnrýna hugsun varðandi sóun og neysluvenjur. Sýningin Fallegustu bækur í heimi stendur einnig yfir á Hönnunarsafni Íslands.

Þá má einnig slaka á í Hreiðrinu og blaða í bókum eða tímaritum úr bókasafni Hönnunarsafnsins.
Hönnunarsafn Íslands er til húsa að Garðatorgi 1 og er opið alla daga nema mánudaga frá 12-17. Alltaf er ókeypis aðgangur á safnið fyrir yngri en 18 ára og í vetrarfríinu fá foreldrar einnig ókeypis í heimsókn með börnum. Lokað á mánudögum.
Ókeypis í sund fyrir yngri en 17 ára
Sundferð klikkar ekki. Það er ókeypis aðgangur í sundlaugar Garðabæjar fyrir yngri en 17 ára. Hér má sjá afgreiðslutíma í Ásgarðslaug og Álftaneslaug.

Saga Garðabæjar
Margmiðlunarsýningin Aftur til Hofsstaða á Garðatorgi 7 spannar sögu Garðabæjar frá landnámi til okkar daga. Sýningin Aftur til Hofsstaða á Garðatorgi er opin alla daga frá 12-17.

Stjörnugerðið
Hvernig væri að kíkja í stjörnugerðið í Heiðmörk og fræðast um himingeiminn? Gerðið sjálft veitir gott skjól og inni í því eru fræðsluskilti og bekkur. Það er tilvalið að leggja leið sína þangað, hvort sem er í dagsbirtu eða myrkri. Í stjörnugerðinu eru kjöraðstæður til að skoða stjörnur og norðurljós.

Hjóla- og gönguleiðir í Garðabæ
Fjölmargar fjölskylduvænar hjóla- og gönguleiðir eru í Garðabæ sem hægt er að njóta í vetrarfríinu. Við mælum með að skoða vefinn Út um allt og fá þannig hugmyndir að skemmtilegum hjóla- eða gönguleiðum í bænum.
Sjá einnig: Áhugaverðar gönguleiðir í Garðabæ
Alltaf stutt í næsta leiksvæði
Í Garðabæ er alltaf stutt í næsta leiksvæði. Er ekki tilvalið að prófa einhvern nýjan og spennandi leikvöll í vetrarfríinu? Við mælum með að kíkja inn á Kortavef Garðabæjar, haka þar við Hagnýtar upplýsingar og svo Leiksvæði og sjá hvar allir leikvellir bæjarins eru staðsettir.

Könnunarleiðangur
Hvernig væri að skella sér í fjöruferð eða að Vífilstaðavatni og kanna þar lífríkið?

Út með voffa
Hundaeigendur gætu nýtt tækifærið og skellt sér út að leika við hundinn á afgirta hundasvæðinu við Garðahraunsveg. Innan gerðisins eru leiktæki fyrir hunda og bekkir fyrir eigendur þeirra.

Frístundabíllinn á sínum stað
Frístundabíll Garðabæjar keyrir samkvæmt áætlun í vetrarfríinu. Nánari upplýsingar má finna hér.