Garðaskóli - endurbætur
Garðabær vinnur eftir ákveðnum verkferlum ef upp kemur grunur um myglu í húsnæði eða mannvirkjum sveitarfélagsins. Verkfræðistofan Cowi (áður Mannvit) er til ráðgjafar varðandi sýnatökur, úrbætur og aðgerðir.
Ferill máls í Garðaskóla
1) Sýni tekin í Garðaskóla
- Greinargerð um skoðun og sýnatökur - 31.03.2023
- Greinargerð um framhaldsskoðun og sýnatöku apríl 2023 - 18.05.2023
- Greinargerð um framhaldsskoðun og sýnatöku maí 2023 - 05.06.2023
- Greinargerð um þakrými - 10.07.2023
- Greining á efnissýnum frá Náttúrufræðistofnun Íslands- 27.03.2023
- Greining á efnissýnum frá Náttúrufræðistofnun Íslands - 12.05.2023
- Greining á efnissýnum frá Náttúrufræðistofnun Íslands - 12.06.2023
- Greining á efnissýnum frá Náttúrufræðistofnun Íslands - 28.06.2023
- Greining á DNA/ryksýnum frá OBH - 17.3.2023
- Greining á DNA/ryksýnum frá OBH - 03.05.2023
- Greining á DNA/ryksýnum frá OBH - 09.06.2023
- Greining á DNA/ryksýnum frá OBH - 15.06.2023
- Greining á DNA/ryksýnum frá OBH - 29.06.2023
- Kynning Mannvits á foreldrafundi - 22.08.2023
2) Staða verkefnis
Verkfræðistofan Mannvit fór í sýnatökur, eftirlit og eftirfylgni vegna rakaskemmda í Garðaskóla. Sýnataka fór fram í byrjun mars 2023 og niðurstöður lágu fyrir 3. apríl og voru kynntar starfsfólki og forráðafólki. Þær bentu til þess að loka þurfi 5 stofum og bókageymslu vegna rakaskemmda. Bærinn greip til þessara lokana þrátt fyrir að mygla hafi ekki greinst í öllum stofunum þar sem ástæða var talin til að skoða sum svæðin betur. Bæjaryfirvöld leggja áherslu á að grípa til aðgerða strax til að tryggja öryggi starfsfólks og nemenda.
Bréf til forráðafólks
- Bréf til forráðafólks - 03.04.2023
- Kynning Mannvits á foreldrafundi - 22.08.2023
3) Næstu skref
Mannvit hóf heildarúttekt á málefnum Garðaskóla og vann með bæjaryfirvöldum að aðgerðar- og kostnaðaráætlun vegna viðgerða á skólanum. Í samþykktri fjárhagsáætlun 2023 var gert ráð fyrir fjármagni til endurbóta á húsnæði stofnana bæjarins.
Skref samkvæmt verklaginu:
- Stofunum og rýmum sem um ræðir verður lokað með loftþéttri lokun á meðan viðgerðir og þrif standa yfir.
- Rými sem um ræðir verða skoðuð nánar.
- Í kjölfarið verður lagst í heildarúttekt á ástandi skólans. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hvað felst í heildarúttekt á skólanum.
- Þá verður ráðist í endurbætur þar sem þörf er á.
- Strax eftir lagfæringar verður svo ráðist í víðtæk þrif.
- Að lokum mun Mannvit sjá um eftirfylgni en sýnataka fer aftur fram 2-3 mánuðum eftir að viðgerðum er lokið.
4) Eftirfylgni
Hluti af verkferlum Garðabæjar þegar mygla eða rakaskemmdir greinast í húsakynnum bæjarins er markviss eftirfylgni.
Þann 17. febrúar 2026 var farið í DNA-sýnatöku í Garðaskóla til þess að sjá hvort þær endurbætur sem gerðar voru 2025 hafi skilað tilætluðum árangri. Tekin voru 22 DNA-rakasýni.
Í skýrslu Cowi má sjá hvar sýni voru tekin og niðurstöður þeirra:
Um heildarúttekt
- Í heildarúttekt eru öll rými húsnæðisins ítarlega skoðuð ásamt þakrýmum til að meta hvort rakavandamál séu til staðar. Byrjað er á að sjónskoða öll rými og leitað eftir ummerkjum um mögulegar rakaskemmdir, um leið er framkvæmd rakaskimun með snertirakamæli á byggingarhlutum til að kanna möguleika á raka. Einnig er hitamyndavél notuð í úttektinni til að leita eftir kuldabrúm og ummerkjum eftir raka. Þessi skoðun ásamt ábendingum frá starfsfólki og aðstandendum nemenda um mögulegan grun um rakaskemmdir í ákveðnum rýmum gefur starfsmönnum Mannvits fyrstu vísbendingarnar um ástand húsnæðisins.
- Út frá þessum vísbendingum er ákveðið hvar og hvernig sýni eru tekin. Efnissýni eru tekin úr grunsamlegum byggingarhlutum til þess að staðfesta hvort örveruvöxt sé til staðar í byggingarefninu eða ekki. Ryksýni og/eða DNA sýni eru tekin til að meta hvort vísbendingar um örverur (bakteríur, svepphlutar og gró) úr rakaskemmdu byggingarefni finnist í uppsöfnuðu ryki. Með þessari sýnatöku er leitað vísbendinga um það hvort mengun eins og lýst er ofar, hafi dreifst um rými sem sýni er tekið úr, eða ekki og þar með hvort inniloft rýmisins hafi innihaldið örverur frá rakaskemmdum sem gætu hafa haft áhrif á heilsufar notenda rýmisins eða ekki. Finnist vísbendingar um mengun frá rakaskemmdum í ryki er almennt mikilvægt að skilja hverjar orsakir þess eru og skoða rýmið betur til að útiloka nýjar eða eldri rakaskemmdir.
- Í kjölfar niðurstaðna sýnatöku er metið hvort ástæða sé til frekari úttektar og sýnatöku. Ef mengun greinist í efnissýnum er einnig farið í frekari sýnatöku til að meta umfang mengunar í byggingarhlutanum og hann opnaður ef þörf er talin á.
Upplýsingar um verkefnið veita:
- Jóhann Skagfjörð, skólastjóri Garðaskóla, johannmagn@gardabaer.is
- Edda Björg Sigurðardóttir, deildarstjóri grunn- og tónlistarskóla, eddabsig@gardabaer.is
- Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, gudbjorgbra@gardabaer.is
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.