Beint í efni

End­ur­bæt­ur vegna raka­skemmda

Garðabær vinnur eftir ákveðnum verkferlum ef grunur vaknar um myglu í húsnæði og mannvirkjum bæjarins.

Verkferlið

Verkfræðistofan Mannvit er til ráðgjafar varðandi sýnatökur, úrbætur og aðgerðir.

Verkferlið skiptist í 3 skref:

  1. Ábending berst og skoðuð nánar.
  2. Úttekt framkvæmd á húsnæðinu.
  3. Aðgerðaráætlun virkjuð þegar grunur er staðfestur.

Fræðsla og leiðbeiningar um myglu

Lykillinn að því að koma í veg fyrir myglu er að hafa stjórn á raka. Mygla þrífst best í röku umhverfi og er vöxtur hennar háður fjórum þáttum:

  • Æti
  • Lofti
  • Viðunandi hitastigi
  • Vatni

Gæði innilofts

Flestir eyða meirihluta af tíma sínum innandyra og því eru gæði innilofts mikilvæg. Margir áhrifaþættir á inniloft verða til vegna raka og ónægrar loftunar. Of mikill raki, á nánast hvaða yfirborði sem er innandyra, getur leitt til örveruvaxtar, svo sem myglu, sveppavaxtar og bakteríuvaxtar.