Hofsstaðaskóli - endurbætur
Garðabær vinnur eftir ákveðnum verkferlum ef upp kemur grunur um myglu í húsnæði eða mannvirkjum sveitarfélagsins. Verkfræðistofan Cowi (áður Mannvit) er til ráðgjafar varðandi sýnatökur, úrbætur og aðgerðir.
Ferill máls í Hofsstaðaskóla
1) Sýni tekin í Hofsstaðaskóla
Í framhaldi af ábendingum um loftgæði í Hofsstaðaskóla voru tekin sýni í byrjun nóvember 2022 og þau send í greiningu. Samkvæmt niðurstöðum þeirra fannst mygla undir gólfdúk í þremur kennslustofum. Jafnframt greindist mygla í ryki í tveimur öðrum kennslustofum og hefur öllum fimm kennslustofunum verið lokað. Svo virðist sem rekja megi mygluna til eldri rakaskemmda í skólanum sem búið var að lagfæra.
Skýrslur:
- Minnisblað lagt fyrir Bæjarráð Garðabæjar – staða heildarúttektar og yfirlit um ástandsskýrslur og endurbætur undanfarin ár
- Glærukynning frá fundi með foreldrum/forráðamönnum - 07.12.2022
- Greinargerð Mannvits um sýnatökur frá 2. nóv 2022 - 30.11.2022
- OBH rannsóknarstofa í Danmörku: Niðurstöður úr sýnatöku - 17.11.2022
- Greinargerð um loftgæðamælingar og sýnatökur - 15.06.2021
- Staða verkefns og framkvæmda í Hofsstaðaskóla - 14.3.2023
- Heildarúttekt á húsnæði Hofsstaðaskóla des 2022 til feb 2023 - dags. 17.3. 2023.
2) Staða verkefnis
Mars 2023: Alls hafa verið tekin 61 efnissýni og 52 DNA/ryksýni til að fá vísbendingar um það hvort mengun/mygla, sveppagró eða aðrar agnir frá rakaskemmdum væru í skólanum (sjá heildarúttekt ). Samkvæmt niðurstöðum greininga voru ummerki um myglu að greinast í 18 af 61 efnissýnum og í í 23 af 52 DNA/ryksýnum. Ráðist hefur verið í mótvægisaðgerðir og endurbætur og hefur skólinn þegar fengið afhentar kennslustofur og rými sem hafa verið viðgerð.
Janúar 2023: Í kjölfar heildarúttektar á ástandi skólans (sem hófst í desember 2022) og niðurstöðu úr sýnatöku var gripið til þess ráðs að loka tveimur bekkjarstofum til viðbótar, tölvustofu og bókageymslu.
Desember 2022: Fimm kennslustofum í Hofsstaðaskóla í Garðabæ var lokað þar sem mygla greindist í þeim í kjölfar sýnatöku í nóvember 2022. Fimm færanlegar kennslustofur voru settar upp við skólann í byrjun janúar.
Fréttir og tengt efni
Bréf til forráðamanna í Hofsstaðaskóla
- 02.03.2023- Bréf til forráðamanna
- 23.01.2023 - Bréf til forráðamanna
- 13.01.2023 - Bréf til forráðamanna
- 07.12.2022 - Bréf til forráðamanna
- 31.10.2022 - Bréf til forráðamanna
Upplýsingar um verkefnið veita:
- Hafdís Bára Kristmundsdóttir, skólastjóri Hofsstaðaskóla, hafdis@hofsstadaskoli.is
- Edda Björg Sigurðardóttir, deildarstjóri grunn- og tónlistarskóla, eddabsig@gardabaer.is
- Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, gudbjorgbra@gardabaer.is
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.