Beint í efni

Álfta­nes, Mið­svæði - Svæði 1 – Breiða­mýri, Stígar – yf­ir­borðs­frá­gang­ur.

Verkið felst í að ljúka yfirborðsfrágangi í miðsvæði hverfisins Breiðumýrar á Álftanesi.

Í auglýsingu
22.09.2026

Upplýsingar um auglýst útboð

Álftanes, Miðsvæði - Svæði 1 – Breiðamýri, Stígar – yfirborðsfrágangur.

Staða útboðs
Í auglýsingu
Útboð opnar
22.09.2026
Útboð lýkur
06.10.2026
Skiladagur verks
20.12.2026
Útboðssíða VerkísSkoða umfjöllun í fundargerðum

Verkið felst í að ljúka yfirborðsfrágangi í miðsvæði hverfisins Breiðumýrar á Álftanesi. Um er að ræða malbikun á aðalstíg í gegnum svæðið, gröft, fyllingu og burðarlag á þrjár stígtengingar frá Lambamýri og Grásteinsmýri inn á aðalstíginn ásamt lagningu á rafstrengjum og uppsetningu á ljósastaurum fyrir stíglýsingu. Auk þess er innifalinn frágangur yfirborðs, áningarstaða og leiksvæðis.

Helstu stærðir og magntölur eru eftirfarandi:

  • Gröftur fyrir stígum og raflögnum 315 m3
  • Styrktarlag 680 m3
  • Burðarlag 2800 m2
  • Malbikun 2.000 m2
  • Rafstrengir 1890 m
  • Uppsetning ljósastólpa og polla 41 stk.
  • Úthagatorf 1000 m2
  • Uppsetning bekkja 12 stk.

Verklok eru 20. desember 2026

Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á útboðssíðu Verkís. https://verkis.is/utbod-gardabaer/

Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með 22. september 2026.

Tilboð skulu hafa borist fyrir 6. október 2026 kl. 14:00. Tilboð verða opnuð rafrænt þriðjudaginn 6. október 2026 kl. 15:00