Beint í efni

Útboð - Breiðamýri Stígagerð

Málsnúmer 2609344

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

15. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

02

18. fundur

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdarleyfi fyrir stígagerð og yfirborðsfrágang á svæði 1 í Breiðamýri á Álftanesi.

Framkvæmdin felur í sér:

-Malbikaða göngustíga

-Stígalýsingu

-Áningarstaði og leiksvæði með bekkjum, leiktækjum og vatnspósti

-Gróðursetningu og frágang yfirborðs

Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdarleyfis fyrir ofangreindu sem eru í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Bæjarráð Garðabæjar

03

36. (2331). fundur

Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Álftanes Miðsvæði - Svæði 1 - Breiðamýri - Stígar - yfirborðsfrágangur":

1. Gleipnir verktakar ehf., kr. 47.000.000 (90,0%).

2. Stjörnugarðar ehf., kr. 47.996.312 (91,9%).

3. Drenlagnir ehf., kr. 53.848.500 (103,2%).

4. Karína ehf., kr. 56.105.000 (107,5%).

5. Steingarður ehf., kr. 51.036.250 (97,8%).

6. Alma verk ehf., kr. 54.625.000 (104,6%).

7. PK verk ehf., kr. 49.547.850 (94,,9%).

8. Emkan ehf., kr. 52.600.000 (100,8%).

9. Mostak ehf., kr. 59.442.900 (113,9%).

10. Loftorka Reykjavík ehf., kr. 48.875.000 (93,6%).

11. Urð og grjót ehf., kr. 45.899.500 (87,9%).

12. Fagurverk ehf., kr. 46.256.000 (88,6%).

13. Gott verk ehf., kr. 42.972.500 (82,3%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa er kr. 52.202.850. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gott verk ehf., að fjárhæð kr. 42.972.500, sem er 82,3% af kostnaðaráætlun.

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

04

32. (2227). fundur

Lögð fram verklýsing vegna Álftaness, miðsvæði. Svæði 1 - Breiðamýri. Stígar - yfirborðsfrágangur.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.