Beint í efni

36. (2331). fundur

20.10.2026
Bæjarráð Garðabæjar

36. (2331). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

20.10.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 26101166

01

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - kynning

Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, kynnti helstu þætti í starfsemi samtakanna sem eru sameiginleg hagsmunasamtök þeirra sjö sveitarfélaga sem mynda höfuðborgarsvæðið.

Málsnúmer 2507256

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029) - Viðauki nr. 1

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2026 samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 1:

Fræðslumál.

Samtals er lagður til kr. 365.000.000 kostnaðarauka á fræðslusviði sbr. neðangreinda sundurliðun:

Sjálfstætt starfandi leikskólar, kr. 162.000.000.

Bæjarreknir leikskólar, kr. 203.000.000.

Samtals kr. 365.000.000

Bruna og almannavarnir - sjóvarnargarðar.

Samtals er lagður til kr. 10.000.000 kostnaðarauki vegna endurbóta á sjóvarnargörðum á Álftanesi:

07440-4520 Sjóvarnargarðar kr. 10.000.000.

Samtals kr. 10.000.000.

Garðahús félagsíbúðir.

Samtals er lagður til kr. 8.000.000 kostnaðarauki vegna félagslegra íbúða og nauðsynlegs viðhaldas.

57110-4502 Viðhald íbúða kr. 8.000.0000.

Samtals kr. 8.000.000.

Kostnaðarauki samtals 383.000.000

383.000.000

Fjármögnun

21870-7179 Varasjóður -200.000.000

00010-0021 Útsvar -84.000.000

Lækkun á rekstrarafgangi -99.000.000

Samtals -383.000.000

Skipting lántöku frá júní 2026 milli A og B hluta.

Lagt er til að lán sem tekið var með skuldabréfaútboði í júní 2026, að fjárhæð kr. 1.068.000.000, skiptist þannig á milli A og B hluta:

53,2% á A-hluta, eða kr. 569.000.000.

46,8% á B-hluta, eða kr. 500.000.000.

Málsnúmer 2605038

03

Kaldakur 6 - Umsókn um byggingarheimild.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Agli Arnari Birgissyni, kt. 020978-5709, heimild til að breyta gluggum að 2 hliðum hússins að Kaldakri 6, setja skyggni yfir glugga á sömu hliðum, ásamt því að klæða hluta veggja með álgrind og stækka sorpskýli.

Málsnúmer 2301595

04

Lindarflöt 44 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Láru Guðrúnu Sigurðardóttur, kt. 080474-5479, leyfi fyrir byggingu glerskála og innri breytingum að Lindarflöt 44.

Málsnúmer 2607168

05

Íþróttasvæði Ásgarður - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109, leyfi fyrir tæknirými og geymslu, á íþróttasvæðinu Ásgarði.

Málsnúmer 2601207

06

Markarflöt 30 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ómari Benediktssyni, kt. 221059-4689, leyfi fyrir viðbyggingu við vesturhluta byggingar og útbúa fataherbergi inn af svefnherbergi og fleiri breytingum að Markarflöt 30.

Málsnúmer 2607147

07

Hjúkrunarheimili í Vetrarmýri - Forval.

Lagt fram minnisblað VSÓ ráðgjafar vegna yfirferðar á hæfi umsækjenda í forvali hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri, uppbygging og útleiga.

Eftirtaldir aðilar uppfylla hæfiskröfur forvalsgagna að fullu:

Eik fasteignafélag ehf.

Eykt ehf.

Heimar atvinnuhúsnæði ehf.

Kaldalón hf.

Laki ehf.

Reitir atvinnuhúsnæði ehf.

Bæjarráð samþykkir að bjóða framangreindum aðilum þátttöku í lokuðu útboði um uppbyggingu og útleigu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri. Bæjarráð felur umhverfissviði að undirbúa útboðið og framkvæmd þess að höfðu samráði við Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.

Málsnúmer 2109388

08

Vetrarmýri - sala og úthlutun lóða.

Úthlutunarskilmálar vegna byggingarlóðarinnar við Vetrarbraut 17 lagðir fram. Við sölumeðferðina verði hvort tveggja horft til þeirra aðila sem taka þátt í forvali um Hjúkrunarheimili í Vetrarmýri og eins til almenns markaðar.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi skilmála og felur Íslandsbanka sölumeðferð lóðarinnar.

Málsnúmer 2609344

09

Opnun tilboða í verkið - Breiðamýri Stígagerð.

Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Álftanes Miðsvæði - Svæði 1 - Breiðamýri - Stígar - yfirborðsfrágangur":

1. Gleipnir verktakar ehf., kr. 47.000.000 (90,0%).

2. Stjörnugarðar ehf., kr. 47.996.312 (91,9%).

3. Drenlagnir ehf., kr. 53.848.500 (103,2%).

4. Karína ehf., kr. 56.105.000 (107,5%).

5. Steingarður ehf., kr. 51.036.250 (97,8%).

6. Alma verk ehf., kr. 54.625.000 (104,6%).

7. PK verk ehf., kr. 49.547.850 (94,,9%).

8. Emkan ehf., kr. 52.600.000 (100,8%).

9. Mostak ehf., kr. 59.442.900 (113,9%).

10. Loftorka Reykjavík ehf., kr. 48.875.000 (93,6%).

11. Urð og grjót ehf., kr. 45.899.500 (87,9%).

12. Fagurverk ehf., kr. 46.256.000 (88,6%).

13. Gott verk ehf., kr. 42.972.500 (82,3%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa er kr. 52.202.850. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gott verk ehf., að fjárhæð kr. 42.972.500, sem er 82,3% af kostnaðaráætlun.

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2607210

10

Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ.

Lagt fram minnisblað vegna vetrarþjónustu gatna í Garðabæ og úrræði Garðabæjar á grundvelli a. liðar 1.mgr. 39.gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.

Með vísan í fyrirliggjandi minnisblað felur bæjarráð sviðsstjóra umhverfissviðs að ganga frá samningum um vetrarþjónustu gatna í Garðabæ, á grundvelli a. liðar 1.mgr. 39.gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.

Málsnúmer 2607211

11

Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ.

Lagt fram minnisblað vegna vetrarþjónustu stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ og úrræði Garðabæjar á grundvelli a. liðar 1.mgr. 39.gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.

Með vísan í fyrirliggjandi minnisblað felur bæjarráð sviðsstjóra umhverfissviðs að ganga frá samningum um vetrarþjónustu stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ, á grundvelli a. liðar 1.mgr. 39.gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.

Málsnúmer 26102470

12

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi 17.10.26.

Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna brúðkaups 17. október 2026.

Bæjarráð gerir með 4 atkvæðum (BF,MB,HBE,SS - ÞÞ sat hjá) ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verið veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.

Málsnúmer 26102469

13

Erindi Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá, 88. mál, dags 13.10.26.

Lögð fram tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjóflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.

Málsnúmer 26102468

14

Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 59. mál, dags. 13.10.26.

Lagt fram fumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, sem varðar sveitarfélög með fleiri en 50.000 íbúa.

Málsnúmer 26102515

15

Til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, 202. mál - Loftslagslög, dags. 15.10.26.

Frumvarp til Loftlagslaga frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis lagt fram.

Málsnúmer 2610192

16

Erindi innviðaráðuneytis varðandi tillögur í samráðsgátt stjórnvalda um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga, dags. 12.10.26.

Lagt fram erindi innviðaráðuneytisins um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.