Opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Vetrarmýri.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (2183). fundur
Á fund bæjarráðs komu Anton Felix Jónsson og Brynjólfur Bjarnason, starfsmenn fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka og gerðu þau grein fyrir tilboðum sem bárust frá neðangreindum lögaðilum í byggingarrétt lóða í Vetrarmýri
Arnarhvoll hf.
Náttslóð ehf.
D2002 ehf.
Arcus ehf.
Framkvæmdafélagið Arnahvoll á hæsta tilboð í allar lóðir kr. 3.030.850.000
Hæsta tilboð í einstaka reiti.
Reitur 6. Arnarhvoll hf., kr. 1.500.940.000.
Reitur 7. Arnarhvoll hf, kr. 1.529.910.000
Samtals: kr. 3.030.850.000.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka að hefja viðræður og leita samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvoll sem er hæstbjóðandi í báða byggingarreitina.
Bæjarráð Garðabæjar
02
29. (2177). fundur
Úthlutunarreglur vegna sölu og úthlutunar lóða annars áfanga í Vetrarmýri lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
24. (2172). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Brynjólfur Bjarnason og Sigurður Gunnar Sigurðsson starfsmenn Íslandsbanka og gerðu grein fyrir kynningargögnum og skilmálum vegna sölu og úthlutun á byggingarrétti lóða annars áfanga í Vetrarmýri, sem auglýstar verða til sölu þann 15. ágúst 2025. Bæjarráð samþykkir að byggingarréttur lóða við Vetrarbraut samkvæmt kynningu verði auglýstur til sölu og úthlutunar.
Bæjarráð Garðabæjar
04
21. (2169). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að kynningu á sölu á byggingarrétta lóða í Vetrarmýri. Um er að ræða tvo reiti með samtals 177 íbúðum, 2.846 fermetra atvinnuhúsnæði og lóðarstærð 9.449 fermetra. Málinu frestað til frekari skoðunar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
7. (903). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvol um úthlutun lóða í Vetrarmýri, sbr. tilboð í lóðirnar og felur bæjarstjóra undirritun samninganna.
Bæjarráð Garðabæjar
07
16. (2023). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvol um úthlutun lóða í Vetrarmýri.
Bæjarráð Garðabæjar
08
47. (2005). fundur
Á fund bæjarráðs komu Eyjólfur Berg Axelsson og Íris Káradóttir, starfsmenn fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka og gerðu þau grein fyrir tilboðum sem bárust frá neðangreindum lögaðilum í byggingarrétt lóða í Vetrarmýri
Þarfaþing ehf.
Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf.
Klapparholt ehf.
Vetrarfell
Úlfarás ehf
S8 ehf.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.
Flotgólf ehf.
Litluvellir ehf.
Fasti eignarhaldsfélag ehf.
GG verk ehf
Dverghamrar ehf.
ÞG verktakar
Framkvæmdafélagið Arnahvoll á hæsta tilboð í allar lóðir kr. 3.281.897.000
Hæsta tilboð í einstaka reiti.
Reitur 1 Vetrarfell ehf. kr. 831.600.000
Reitur 2 ÞG verktakar ehf. kr. 1.095.000.000
Reitur 3 Vetrarfell ehf. kr. 452.600.000
Reitur 4 ÞG verktakar ehf. kr. 385.000.000
Reitur 5 Vetrarfell ehf. kr. 564.800.000
Samtals: kr. 3.329.000.000
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka að hefja viðræður og leita samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvoll sem er hæstbjóðandi samtals í alla reiti.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
09
41. (199).. fundur
Á fund bæjarráðs mættu Eyjólfur Berg Axelsson og Anton Felix Jónsson starfsmenn Íslandsbanka og gerðu grein fyrir kynningargögnum og skilmálum vegna sölu og úthlutun á byggingarrétti lóða í Vetrarmýri.
Bæjarráð samþykkir að byggingarréttur lóða við Vetrarbraut samkvæmt kynningu verði auglýstur til sölu og úthlutunar samkvæmt fyrirliggjandi úthlutunarskilmálum.
Á fjarfundi undir þessum dagskrárlið voru bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Gunnar Valur Gíslason og Jóna Sæmundsdóttir.