Beint í efni

21. (2169). fundur

03.06.2025
Bæjarráð Garðabæjar

21. (2169). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

03.06.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2109388

01

Vetrarmýri, sala og úthlutun lóða - kynning.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að kynningu á sölu á byggingarrétta lóða í Vetrarmýri. Um er að ræða tvo reiti með samtals 177 íbúðum, 2.846 fermetra atvinnuhúsnæði og lóðarstærð 9.449 fermetra. Málinu frestað til frekari skoðunar.

Málsnúmer 2410186

02

Skuldabréfaútboð Garðabæjar

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku. Skuldabréfaútboði Garðabæjar í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 lauk 2. júní 2025. Heildartilboð í flokkinn voru 9 talsins og námu samtals 2.385 m.kr. að nafnverði. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að samþykkja tilboð samkvæmt útboðinu að fjárhæð allt að 1.370 m.kr. að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,9%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur 1.877.067.524 kr. Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði 3.000 m.kr., en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því 4.370 m.kr. að nafnverði. Framangreindar fjárhæðir eru í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Málsnúmer 2503260

03

Útholt 10 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fjölni Má Geirssyni, kt. 040480-3159, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Útholti 10.

Málsnúmer 2410080

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar, rammahluta Vífilsstaðalands, sem nær til háholts Hnoðraholts.

Ábendingar og umsagnir sem bárust gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni óbreyttri til auglýsingar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar.

Málsnúmer 2410298

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Lækjarfit, Langafit - breyting lóða

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar Lækjarfitjar 6 og Löngufitjar 5. Athugasemd barst frá eiganda Löngufitjar 5.

Lögð fram tillaga að breyttum lóðarmörkum sem hefur verið mótuð í samráði við eiganda Löngufitjar 5.

Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með breyttri útfærslu sem er viðbragð við innsendri athugasemd í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2412377

06

Útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum.

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Skólamálsverðir í grunn- og leikskólum 2025-2029":

Tilboð frá Skólamat ehf.:

1. Austurhverfi - heildartilboð - kr. 974.304.600.

2. Miðhverfi - heildartilboð - kr. 1.710.018.700.

3. Vesturhverfi - heildartilboð - kr. 957.982.300.

Tilboð bárust ekki frá öðrum.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Skólamatar ehf., að fjárhæð kr. 974.304.600 fyrir austurhverfi, kr. 1.710.018.700 fyrir miðhverfi og kr. 957.982.300 fyrir vesturhverfi. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð felur grunnskólanefnd og leikskólanefnd að fylgja nánar eftir framkvæmd samningsins.

Málsnúmer 2505501

07

Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026, undirbúningur.

Gerð grein fyrir bréfi SSH vegna skipunar í aðgerðarhóp sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026, til samræmis við fyrirliggjandi tillögu til þingsályktunar um skipun aðgerðarhóps vegna almyrkvans. Sviðsstjóri umhverfissviðs mun sitja í hópnum fyrir hönd Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2505520

08

Gervigreindarstefna Garðabæjar

Sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs kynnti stefnu um notkun gervigreindar hjá Garðabæ, en bærinn hefur það markmið með notkun gervigreindar að auka möguleika starfsfólks og notenda til upplýsinga og sjálfbærni, auka sjálfstæði í vinnu og verkefnum og leggja nútímaleg verkfæri í hendur starfsfólks.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi stefnu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2506010

09

Kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ.

Lagt fram minnisblað Strætó varðandi kvöldakstur leiða 22 og 23 í Garðabæ.

Bæjarráð samþykkir að hafinn verði kvöldakstur með hálftíma tíðni á leiðum 22 og 23 frá 1. september 2025. Stefnt skal að því að tími síðustu ferðar taki mið af útivistartíma barna og ungmenna eftir því sem því verður við komið.

Skal þjónustan vera til reynslu og endurmetin að ári liðnu. Samhliða verði möguleg tilhögun og útfærsla innanbæjaraksturs í Garðabæ metin og rýnd.

Fylgiskjöl