Beint í efni

Útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum

Málsnúmer 2412377

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

32. fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynnti níðurstöðu útboðs skólamáltíða í leik- og í grunnskólum.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

31. fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynnti níðurstöður útboðs skólamáltíða í leik- og í grunnskólum.

Bæjarráð Garðabæjar

03

21. (2169). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Skólamálsverðir í grunn- og leikskólum 2025-2029":

Tilboð frá Skólamat ehf.:
1. Austurhverfi - heildartilboð - kr. 974.304.600.
2. Miðhverfi - heildartilboð - kr. 1.710.018.700.
3. Vesturhverfi - heildartilboð - kr. 957.982.300.

Tilboð bárust ekki frá öðrum.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Skólamatar ehf., að fjárhæð kr. 974.304.600 fyrir austurhverfi, kr. 1.710.018.700 fyrir miðhverfi og kr. 957.982.300 fyrir vesturhverfi. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð felur grunnskólanefnd og leikskólanefnd að fylgja nánar eftir framkvæmd samningsins.

Leikskólanefnd Garðabæjar

04

30. fundur

Útboð skólamáltíða 2025- kynning

Guðbjörg Linda Udengard sviðsstjóri Fræðslu- og frístundasviðs kynnti fyrirhugað útboð á skólamat fyrir leik- og grunnskóla í Garðabæ.

Bæjarráð Garðabæjar

05

13. (2161). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og frístundarsviðs fór yfir drög að útboði skólamáltíða, en samningar samkvæmt fyrra útboði eru að renna sitt skeið á enda.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í útboð á skólamat sem hafi þá valmöguleika að hægt verði að bjóða bæði í skólamáltíðir í öllum skólum í heild eða takmarka boð við eitt eða fleiri svæði.
Bæjarráð felur fræðslu- og frístundasviði framkvæmd útboðsins.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

06

29. fundur

Sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti verklag og helstu ákvæði í útboðsgögnum vegna skólamáltíða í leik- og grunnskólum Garðabæjar.

Leikskólanefnd Garðabæjar

07

28. fundur

Guðbjörg Linda Udengard sviðsstjóri sagði frá undirbúningi sem farinn er í gang vegna útboðs skólamáltíða í grunn- og leikskólum Garðabæjar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

08

27. fundur

Sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti útboð skólamáltíða í leik- og grunnskóla sem fram fer á vormánuðum 2025.