31. fundur
31. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
04.06.2025
Kl. 16:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Eva Björg F Torfadóttir - varamaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - varaformaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - varamaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Guðný Guðmundsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Sesselja Þóra Gunnarsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2412377
01
Útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum
Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynnti níðurstöður útboðs skólamáltíða í leik- og í grunnskólum.
Málsnúmer 2505531
02
Ástundun og skólasókn
Rætt var um leiðir til að bæta ástundun og mætingar nemenda í grunnskólum. Skólanefnd telur mikilvægt að þróa áfram viðmið um skólasókn í Garðabæ og að grunnskólar bregðist við með sambærilegum hætti vegna leyfisbeiðna og ófullnægjandi skólasóknar. Skólanefnd vísar málinu til fræðslu- og frístundasviðs til frekari skoðunar i samráði við skólastjórnendur.
Málsnúmer 2505532
03
Endurmenntun fagfólks grunnskóla 2025-2026
Grunnskólafulltrúi kynnti sumarnámskeið/vinnustofur sem haldin verða á endurmenntunardögum fagfólks í ágúst. Fagfólk hefur val um tólf fjölbreytt námskeið/vinnustofur. Flest námskeiðin fara fram 13. ágúst en önnur ná yfir lengri tíma.
Málsnúmer 2408207
04
Grunnskólar, árangur og líðan
Rætt var um skólastarf í grunnskólum Garðabæjar. Skólanefnd telur nauðsynlegt að halda áfram að safna tölfræðigögnum um námsmat, líðan barna og mætingar. Skólanefnd vísar því til fræðslusviðs að skoða hvort meta eigi sömu hæfniviðmið í grunnskólum Garðabæjar, við lok hvers skólastigs þ.e., í 4.,7. og 10. bekk. Grunnskólafulltrúi kynnti Matsferil MMS, þrepaskiptan stuðning og stigskipta kennslu. Matsferill í lesskilningi verður lagður fyrir nemendur í grunnskólum á haustmánuðum og stærðfræði á vormánuðum 2026.
Málsnúmer 2506001
05
Sértæk úrræði í grunnskólum
Rætt var um sértæk skólaúrræði. Á vegum SSH er verið að þarfagreina stöðu sérskóla á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er hafin vinna á fræðslu- og frístundasviði í samstarfi við skólastjórnendur um þarfagreiningu á sértækum úrræðum í grunnskólum bæjarins. Rædd voru drög að viljayfirlýsingu um stuðning við stofnun á sjálfstætt starfandi skóla fyrir einhverf börn frá og með ágúst 2026.
Málsnúmer 2505533
06
Störf skólanefndar 2024-2025, samantekt og áherslur á næsta skólaári
Samantekt á störfum skólanefndar 2024-2025 lögð fram. Formaður skólanefndar fór yfir störf nefndarinnar. Formaður þakkaði fyrir gott samstarf