Sértæk úrræði í grunnskólum
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
40. fundur
Grunnskólafulltrúi kynnti stöðu stofnunar Þorláksskóla sem er sérhæfður grunnskóli fyrir einhverf börn. Stefnt er að því að skólinn taki til starfa haustið 2026, af því skyldu að tilskilin leyfi fáist.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
32. fundur
Lögð var fram til kynningar viljayfirlýsing á milli Garðabæjar og Jónsvegs ehf. um vilja til að undirbúa stofnun skóla, sem er sérhæfður grunnskóli fyrir einhverf börn.
Bæjarráð Garðabæjar
03
23. (2171). fundur
Lögð fram viljayfirlýsing milli Garðabæjar og Jónsvegs ehf. um vilja til að undirbúa stofnun skóla, sem er sérhæfður grunnskóli fyrir einhverf börn.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (HBE, AG, GVG, BDG) að veita bæjarstjóra heimild til að undirrita viljayfirlýsinguna fyrir hönd Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir sat hjá og lagði fram eftirfarandi bókun: "Garðabæjarlistinn fagnar því að horft sé til þess að setja á fót sérúrræði fyrir einhverf grunnskólabörn. Hins vegar hefðum við viljað frekari umræðu og upplýsingar áður en viljayfirlýsing um stofnun nýs skóla er borin á borð bæjarráðs til afgreiðslu, einkarekins grunnskóla með húsnæðisstuðningi frá Garðabæ án þess að fjallað sé um kosti og galla rekstrarformsins, húsnæðismál, þarfagreiningu o.fl. Þess vegna sit ég hjá við hjá við atkvæðagreiðsluna."
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
04
31. fundur
Rætt var um sértæk skólaúrræði. Á vegum SSH er verið að þarfagreina stöðu sérskóla á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er hafin vinna á fræðslu- og frístundasviði í samstarfi við skólastjórnendur um þarfagreiningu á sértækum úrræðum í grunnskólum bæjarins. Rædd voru drög að viljayfirlýsingu um stuðning við stofnun á sjálfstætt starfandi skóla fyrir einhverf börn frá og með ágúst 2026.