Beint í efni

40. fundur

06.05.2026
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

40. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

06.05.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Tinna Borg Arnfinnsdóttir - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Anna María Skúladóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2408207

01

Grunnskólar, árangur og líðan

Kristján Gunnarsson hjá Deloitte kynnti vinnu við gerð tölfræðigagna á námsmati, líðan barna og mætingu í grunnskólum Garðabæjar fyrir skólaárið 2024-2025. Til kynningar voru niðurstöður er varða íslensku- og stærðfræði í 4., 7. og 10.bekk. Þá var þróun gagna skoðuð fyrir árin 2019-2024. Staðan er almennt góð, nemendur í Garðabæ standa sig almennt betur í Lesfimi en landið og líðan er almennt betri.

Málsnúmer 2506001

02

Sértæk úrræði í grunnskólum

Grunnskólafulltrúi kynnti stöðu stofnunar Þorláksskóla sem er sérhæfður grunnskóli fyrir einhverf börn. Stefnt er að því að skólinn taki til starfa haustið 2026, af því skyldu að tilskilin leyfi fáist.

Málsnúmer 2604374

03

Skóladagatal leik- og grunnskóla 2027-2028

Skóladagatal 2027 - 2028 var lagt fram til kynningar og samþykkt.

Málsnúmer 2602428

04

Endurmenntunarsjóður grunnskóla 2026

Úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2026, var lögð fram til kynningar. Alls bárust umsóknir um styrki til 226 verkefna frá 82 umsækjendum upp á rúmlega 227 milljónir króna. Ákveðið var að veita styrki til 219 verkefna og nam heildarfjárhæð styrkloforða rúmlega 82,4 milljónum króna.

Garðabær = 3.399.000.- (103 klukkustundir)

Álftanesskóli = 462.000.-

Flataskóli = 264.000.-

Hofsstaðaskóli = 462.000.-

Garðaskóli = 297.000.-

Sjálandsskóli = 990.000.-

Urriðaholtsskóli = 990.000.-

Samtals úthlutað til Garðabæjar kr. 6.864.000.-

Málsnúmer 2604540

05

Eftirlit með gæðum á máltíðum í leik- og grunnskólum.

Grunnskólafulltrúi kynnti aðkomu næringarfræðinga á vegum Garðabæjar sem frá og með vori 2026 munu sinna eftirliti með skólamáltíðum í leik- og grunnskólum. Á samningstímanum munu þeir heimsækja skóla í Garðabæ. Árlega verður farið í markvissar úttektir í völdum skólum þar sem m.a., verða metnir matseðlar, framsetning, úrval og gæði matar.

Næringarfræðingar munu einnig fara í eftirlit í framleiðslueldhús Skólamatar og skóla þar sem það á við, með áherslu á eftirlit með gæðum, innihaldsefnum, vinnslu hráefna og fyrirkomulag vegna ofnæmisvalda.

Málsnúmer 2604375

06

Störf skólanefndar 2025-2026 - samantekt

Samantekt á störfum skólanefndar 2025-2026 lögð fram. Formaður skólanefndar fór yfir störf nefndarinnar og helstu verkefni og áherslu á kjörtímabilinu. Formaður þakkaði fyrir gott samstarf á kjörtímabilinu.