Beint í efni

Eftirlit með gæðum á máltíðum í leik- og grunnskólum.

Málsnúmer 2604540

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

40. fundur

Grunnskólafulltrúi kynnti aðkomu næringarfræðinga á vegum Garðabæjar sem frá og með vori 2026 munu sinna eftirliti með skólamáltíðum í leik- og grunnskólum. Á samningstímanum munu þeir heimsækja skóla í Garðabæ. Árlega verður farið í markvissar úttektir í völdum skólum þar sem m.a., verða metnir matseðlar, framsetning, úrval og gæði matar.

Næringarfræðingar munu einnig fara í eftirlit í framleiðslueldhús Skólamatar og skóla þar sem það á við, með áherslu á eftirlit með gæðum, innihaldsefnum, vinnslu hráefna og fyrirkomulag vegna ofnæmisvalda.