5. fundur
5. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
11.11.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Páll Árnason - aðalmaður
- Eydís Sigurðardóttir - aðalmaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
- Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
Ritari
- Hanna Halldóra Leifsdóttir
Dagskrá
01
Menningardagskrá fyrir leikskólahópa
Kynning á menningardagskrá frestast til fyrsta fundar í janúar 2027.
02
Eftirlit með gæðum á máltíðum í leik- og grunnskólum.
Leikskólafulltrúi kynnti samning við Önnu Lind Traustadóttur og Elísu Viðarsdóttur næringarfræðinga um úttekt og ráðgjöf vegna skólamáltíða í leik- og grunnskólum Garðabæjar. Leikskólanefnd fagnar því að fagleg úttekt sé gerð á matseðlum skólanna.
03
Orð og sögur - samstarfsverkefni bókasafns og fræðslusviðs Garðabæjar
Kynning á samstarfsverkefni Bókasafns Garðabæjar og fræðslu- og frístundasviðs um styrkingu orðaforða og íslensku í leik- og grunnskólum.
04
Viðurkenningar í skólastarfi 2026
Kynning á fjórum verkefnum sem hlutu viðurkenningu sem framúrskarandi þróunarverkefni á Menntadaginn sem fram fór 30. október 2026.
05
Ársskýrsla/starfsáætlun leikskóla 2025-2026 Umbótaáætlun 2026-2027
Leikskólafulltrúi fór yfir helstu upplýsingar og niðurstöður úr starfs- og umbótaáætlunum leikskóla fyrir starfsárið 2025-2026.