Grunnskólar, árangur og líðan - Kynning.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. (2212). fundur
Kristján Gunnarsson hjá Deloitte kynnti vinnu við gerð tölfræðigagna á námsmati, líðan barna og mætingu í grunnskólum Garðabæjar fyrir skólaárið 2024-2025. Til kynningar voru niðurstöður er varða íslensku- og stærðfræði í 4., 7. og 10.bekk. Þá var þróun gagna skoðuð fyrir árin 2019-2024. Staðan er almennt góð, nemendur í Garðabæ standa sig almennt betur í lesfimi en landið og líðan er almennt betri.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
40. fundur
Kristján Gunnarsson hjá Deloitte kynnti vinnu við gerð tölfræðigagna á námsmati, líðan barna og mætingu í grunnskólum Garðabæjar fyrir skólaárið 2024-2025. Til kynningar voru niðurstöður er varða íslensku- og stærðfræði í 4., 7. og 10.bekk. Þá var þróun gagna skoðuð fyrir árin 2019-2024. Staðan er almennt góð, nemendur í Garðabæ standa sig almennt betur í Lesfimi en landið og líðan er almennt betri.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
03
31. fundur
Rætt var um skólastarf í grunnskólum Garðabæjar. Skólanefnd telur nauðsynlegt að halda áfram að safna tölfræðigögnum um námsmat, líðan barna og mætingar. Skólanefnd vísar því til fræðslusviðs að skoða hvort meta eigi sömu hæfniviðmið í grunnskólum Garðabæjar, við lok hvers skólastigs þ.e., í 4.,7. og 10. bekk. Grunnskólafulltrúi kynnti Matsferil MMS, þrepaskiptan stuðning og stigskipta kennslu. Matsferill í lesskilningi verður lagður fyrir nemendur í grunnskólum á haustmánuðum og stærðfræði á vormánuðum 2026.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
04
29. fundur
Gísli Guðjónsson hjá Deloitte kynnti vinnu við gerð tölfræðigagna á námsmati, líðan barna og mætingu í grunnskólum Garðabæjar. Til kynningar voru drög að framsetningu á gögnum er varða íslensku- og í stærðfræði í 4.b. 7. b. og 10.b. Sviðsstjóra fræðslusviðs, grunnskólafulltrúa og sviðsstjóra þjónustu og þróunarsviðs ásamt formanni skólanefndar er falið að vinna áfram að niðurstöðum og gera tillögur að næstu skrefum inn á fund skólanefndar grunnskóla. Skólanefnd þakkar mikilvæga vinnu og ekki síst aðkomu grunnskólanna að gagnavinnslu.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
05
21. fundur
Rætt var um skólastarf í grunnskólum Garðabæjar. Umræður voru um mælitæki sem grunnskólarnir nota og leiðir til umbóta, framfara og hvernig við tryggjum gæðaskólastarf. Skólanefnd telur nauðsynlegt að hafa samanburðarhæfar mælingar á námsárangri meðal annars til að hægt sé að þróa kennsluaðferðir út frá árangri. Skólanefnd felur fræðslu- og menningarsviði að draga fram stöðu nemenda í Garðabæ varðandi námsárangur og námsframvindu í samstarfi við skólastjórnendur og hagaðila og gera tillögur til úrbóta eftir því sem við á. Kynningar á þeirri vinnu fari fram á fundum skólanefndar fyrir næstu áramót. Ákveðið var að fá kynningu á niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar á fund skólanefndar með áherslu á hagnýta og ráðgefandi úrvinnslu gagna.