Beint í efni

17. (2212). fundur

12.05.2026
Bæjarráð Garðabæjar

17. (2212). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

12.05.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2408207

01

Grunnskólar, árangur og líðan - Kynning.

Kristján Gunnarsson hjá Deloitte kynnti vinnu við gerð tölfræðigagna á námsmati, líðan barna og mætingu í grunnskólum Garðabæjar fyrir skólaárið 2024-2025. Til kynningar voru niðurstöður er varða íslensku- og  stærðfræði í 4., 7.  og 10.bekk. Þá var þróun gagna skoðuð fyrir árin 2019-2024. Staðan er almennt góð, nemendur í Garðabæ standa sig almennt betur í lesfimi en landið og líðan er almennt betri.

Málsnúmer 2601141

02

Þróunarsjóður leikskóla 2026-2027.

Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun styrkja úr þróunarsjóði leikskóla 2026. Alls bárust 8 umsóknir í sjóðinn. Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 9.000.000 úr sjóðnum til 7 verkefna. Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð leikskóla.

Málsnúmer 2604531

03

Sumaraukaopnun sundlauga.

Lagt fram minnisblað um sumaropnun sundlauga í Garðabæ.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að farið verði í afmarkaða tilraunaopnun til kl. 22.00 á sunnudagskvöldum í Ásgarðslaug og Álftanesslaug frá 1. júní til 30. september 2026.

Málsnúmer 2605077

04

Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - opnun og starfsemi.

Lagt fram minnisblað um fyrirhugaða opnun og starfsemi í þriðja áfanga Urriðaholtsskóla. Áfanginn felur í sér íþróttasal, innisundlaug, tilheyrandi stoðrými og kennslurými. Starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar Urriðaholti mun hefjast formlega í ágúst, við upphaf nýs skólaárs.

Bæjarráð samþykkir að meta kostnaðaráhrif þess að tekin verði upp sambærileg sumaraukaopnun í sundlaug í Urriðaholti og verður í Ásgarðslaug og Álftaneslaug.

Bókun Guðlaugar Kristmundssonar:

"Viðreisn í Garðabæ vill að fyrirhuguð tilraun, að lengja opnunartíma sundlauga í Garðabæ á sunnudagskvöldum sumarið 2026, nái einnig til sundlaugarinnar í Urriðaholti þegar hún hefur hafið rekstur."

Málsnúmer 2605076

05

Styrkbeiðni - Yfirlitssýning á verkum Péturs Bjarnasonar myndlistarmanns.

Bæjarráð vísar erindinu til umræðu á fundi menningarnefndar og til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2026.