Beint í efni

Þróunarsjóður leikskóla 2026-2027.

Málsnúmer 2601141

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

17. (2212). fundur

Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun styrkja úr þróunarsjóði leikskóla 2026. Alls bárust 8 umsóknir í sjóðinn. Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 9.000.000 úr sjóðnum til 7 verkefna. Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð leikskóla.

Leikskólanefnd Garðabæjar

02

40. fundur

Úthlutað var úr Þróunarsjóði leikskóla fyrir skólaárið 2026-2027. Leikskólanefnd leggur til við bæjarráð að samtals 9.000.000 króna verði úthlutað úr sjóðnum, í samræmi við reglur hans. Alls bárust átta styrkumsóknir og var sótt um styrk fyrir samtals 12.747.000 krónur. Umsækjendur komu á fund nefndarinnar og kynntu verkefni sín. Allar umsóknir voru teknar til afgreiðslu og fengu sjö verkefni styrk. Nefndin þakkar fyrir fjölbreyttar og áhugaverðar umsóknir sem endurspegla framsýni og metnað í leikskólastarfi Garðabæjar.

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

37. fundur

Kynntar voru tillögur að áherslum fyrir Þróunarsjóð leikskóla 2026. Tillögurnar voru samþykktar en leikskólanefnd lagði áherslu á að hægt væri að senda inn umsókn þó verkefnið falli ekki undir áherslur þróunarsjóðs þessa árs.