40. fundur
40. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
22.04.2026
Kl. 08:15 - 10:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Maria Eugenia Aleman Henriquez - varamaður
- Eydís Sigurðardóttir - varamaður
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
- Ingi Örn Jónsson - fulltrúi foreldra
Ritari
- Hanna Halldóra Leifsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2604306
01
Innritun í leikskóla 2026
Hanna H Leifsdóttir leikskólafulltrúi gerði grein fyrir stöðu innritunar barna í leikskóla fyrir haustið 2026.
Innritun hefur gengið mjög vel og búið er að bjóða öllum börnum sem fædd eru í september 2025 leikskólapláss. Vonir standa til að einnig verði hægt að úthluta börnum sem fædd eru í október 2025 leikskólapláss.
Málsnúmer 2601141
02
Þróunarsjóður leikskóla 2026 - 2027
Úthlutað var úr Þróunarsjóði leikskóla fyrir skólaárið 2026-2027. Leikskólanefnd leggur til við bæjarráð að samtals 9.000.000 króna verði úthlutað úr sjóðnum, í samræmi við reglur hans. Alls bárust átta styrkumsóknir og var sótt um styrk fyrir samtals 12.747.000 krónur. Umsækjendur komu á fund nefndarinnar og kynntu verkefni sín. Allar umsóknir voru teknar til afgreiðslu og fengu sjö verkefni styrk. Nefndin þakkar fyrir fjölbreyttar og áhugaverðar umsóknir sem endurspegla framsýni og metnað í leikskólastarfi Garðabæjar.