Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - opnun og starfsemi.
Málsnúmer 2605077
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
17. (2212). fundur
Lagt fram minnisblað um fyrirhugaða opnun og starfsemi í þriðja áfanga Urriðaholtsskóla. Áfanginn felur í sér íþróttasal, innisundlaug, tilheyrandi stoðrými og kennslurými. Starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar Urriðaholti mun hefjast formlega í ágúst, við upphaf nýs skólaárs.
Bæjarráð samþykkir að meta kostnaðaráhrif þess að tekin verði upp sambærileg sumaraukaopnun í sundlaug í Urriðaholti og verður í Ásgarðslaug og Álftaneslaug.
Bókun Guðlaugar Kristmundssonar:
"Viðreisn í Garðabæ vill að fyrirhuguð tilraun, að lengja opnunartíma sundlauga í Garðabæ á sunnudagskvöldum sumarið 2026, nái einnig til sundlaugarinnar í Urriðaholti þegar hún hefur hafið rekstur."