Beint í efni

Opnunartími sundlauga í Garðabæ.

Málsnúmer 2604531

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

34. (2229). fundur

Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasvið kynnti minnisblað um sumaraukaopnun sundlauga sumarið 2026.

Bæjarráð samþykkir að framlengja opnunartíma sundlauga til kl. 22:00 á sunnudagskvöldum í Ásgarðslaug og Álftaneslaug út október 2026. Bæjarráð vísar til fræðslu- og frísundasviðs að útfæra tillögur að sumaropnun sundlauga við gerð fjárhagsáætlunar 2027.

Bæjarráð Garðabæjar

02

17. (2212). fundur

Lagt fram minnisblað um sumaropnun sundlauga í Garðabæ.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að farið verði í afmarkaða tilraunaopnun til kl. 22.00 á sunnudagskvöldum í Ásgarðslaug og Álftanesslaug frá 1. júní til 30. september 2026.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

50. fundur

Sumarauki í sundlaugum Garðabæjar 2026

Áformað er vegna fjölda fyrirspurna að vera með auka opnun í sundlaugum Garðabæjar í tilrauna skyni á sunnudagskvöldum til kl. 22:00 1. júní til 30. september 2026.

Rædd var tillaga um sumaropnun í sundlaugum Garðabæjar 2026, sem felur í sér lengri opnun sundlauga í Ásgarði og á Álftanesi á sunnudagskvöldum til kl. 22:00 frá 1. júní til 30. september, í tilraunaskyni. Íþrótta- og tómstundaráð telur tillöguna metnaðarfullt og jákvætt skref til að efla þjónustu við bæjarbúa yfir sumartímann og leggur til við bæjarráð að hún verði samþykkt. Að tímabilinu loknu verði tekin saman tölfræði um nýtingu og reynslu af verkefninu og málið metið í framhaldinu.

Undir sama lið var einnig fjallað um fyrirhugaða opnun sundlaugar í Urriðaholti fyrir almenning. Íþrótta- og tómstundaráð fagnar þeim áformum, sem og tilkomu nýs íþróttahúss, og telur hvort tveggja mikilvægt skref í að efla aðgengi bæjarbúa að fjölbreyttri íþrótta-, tómstunda- og heilsueflandi þjónustu.