Beint í efni

34. (2229). fundur

06.10.2026
Bæjarráð Garðabæjar

34. (2229). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

06.10.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Birkir Guðlaugsson - varamaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2304477

01

Úthlutun og sala lóða á Hnoðraholti.

Bæjarstjóri kynnti úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti suður - háholti.

Bæjarráð samþykkir úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti suður - háholti og felur bæjarstjóra að auglýsa lóðirnar.

Málsnúmer 2604531

02

Opnunartími sundlauga í Garðabæ.

Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasvið kynnti minnisblað um sumaraukaopnun sundlauga sumarið 2026.

Bæjarráð samþykkir að framlengja opnunartíma sundlauga til kl. 22:00 á sunnudagskvöldum í Ásgarðslaug og Álftaneslaug út október 2026. Bæjarráð vísar til fræðslu- og frísundasviðs að útfæra tillögur að sumaropnun sundlauga við gerð fjárhagsáætlunar 2027.

Málsnúmer 2607211

03

Útboð - Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029.

Lögð fram minnisblöð COWI vegna útboðs í vetrarþjónustu stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029.

Bæjarráð vísar málinu til umhverfissviðs til skoðunar á grundvelli a. liðar 1.mgr. 39.gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.

Málsnúmer 2607210

04

Útboð - Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2026-2029.

Lögð fram minnisblöð COWI vegna útboðs í vetrarþjónustu gatna í Garðabæ 2026-2029.

Bæjarráð vísar málinu til umhverfissviðs til skoðunar á grundvelli a. liðar 1.mgr. 39.gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.

Málsnúmer 2610043

05

Fjárlög 2027

Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma á framfæri athugasemdum við frumvarpið, þar sem Garðabær geri athugasemdir við að fjárframlög ríkisins til sveitarfélaga vegna innleiðingar farsældar verði felld niður að fullu, eins og ráð er fyrir gert í frumvarpinu. Fyrir liggur að stjórnvöldum ber samkvæmt lögum að tryggja sveitarfélögum fjármagn á innleiðingartímabili farsældarlaganna og að því tímabili loknu skulu fara fram endurmat á fjárþörf sveitarfélaganna vegna lögbundinnar þjónustu.

Málsnúmer 2609564

06

Styrkbeiðni Garðakórsins, kórs eldri borgara í Garðabæ vegna, starfsársins 2026, dags. 26.09.26.

Bæjarráð vísar erindinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2026.

Málsnúmer 2609618

07

Styrkbeiðni Bjarkarhlíðar vegna starfsársins 2027, dags. 20.09.26.

Bæjarráð vísar erindinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2027.

Málsnúmer 2610012

08

Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2027, dags. 30.09.26.

Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar ásamt fylgigögnum þar sem fram kemur að hlutdeild Garðabæjar árið 2027 er áætluð kr. 3.423.373.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Málsnúmer 2610021

09

Bréf Samgöngustofu varðandi umsögn um geymslustað ökutækja fyrir Miklatorg ehf. að Kauptúni 4, dags 30.09.26.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Miklatorgi ehf., kt. 541293-2809, Kauptúni 4, Garðabæ, verði veitt starfsleyfi til að starfrækja ökutækjaleigu að Kauptúni 4, en um er að ræða starfsemi á vegum Miklatorgs hf./IKEA.

Málsnúmer 2610020

10

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi vegna villibráðakvölds í Miðgarði 06.11.26.

Lögð fram umsókn UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi í Miðgarði á villibráðakvöldi sem halda á 6. nóvember 2026. Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2610046

11

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Hlöðunni Álftanesi 10.10.26.

Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Hlöðuna á Álftanesi vegna brúðkaups 10. október 2026.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (MB, HBE, SS, BK) gegn einu (ÞÞ) að gera ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi hafi verið veitt, með fyrirvara um samþykki annarra umsagnaraðila.

Málsnúmer 2610073

12

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi á herrakvöldi Stjörnunnar í Miðgarði 09.10.26.

Lögð fram umsókn UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi í Miðgarði á herrakvöldi Stjörnunnar 9. október 2026. Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.