Beint í efni

Tilboð í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti.

Málsnúmer 2304477

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

45.(2098). fundur

Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 21. nóvember 2023 voru opnuð tilboð í lóðir í 2. áfanga norðurhluta Hnoðraholts.

Alls bárust 809 tilboð sem skiptust þannig.

Tilboð í fjölbýlishúsalóðir 103

Tilboð í par/raðhúsalóðir 215

Tilboð í einbýlishúsalóðir 491

Bæjarráð samþykkir að taka tilboðum þar sem lagt er til grundvallar hæsta verð í samræmi við úthlutunar- og söluskilmála. Tilboðin eru samþykkt með fyrirvara um að tilboðsgjafar uppfylli öll skilyrði um hæfi samkvæmt 5. tl. í úthlutunar- og söluskilmálum og 3. gr. úthlutunarreglna.

Bæjarráð samþykkir veita bæjarstjóra umboð til að samþykkja tilboð í lóðir í þeim tilvikum sem tilboðsgjafar falla frá tilboðum sínum eða uppfylla ekki hæfisskilyrði. Skal þá lagt til grundvallar að taka tilboðum frá þeim aðilum sem næstir eru í röðinni hvað varðar tilboðsverð, enda séu uppfyllt skilyrði í úthlutunar- og söluskilmálum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

44.(2097). fundur

Lögð voru fram 351 óopnuð umslög með tilboðum í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti, sbr. tilkynningu um sölu á byggingarrétti lóða á Hnoðraholti sem birt var á vef Garðabæjar 3. nóvember 2023.

Tilboðin komu frá söluaðilum, þ.e. Torg - fasteignasölu, Garðatorg eignamiðlun, Fasteignamarkaðinum og Fasteignasölunni Miklaborg.


Öll tilboð voru móttekin fyrir kl. 12:00, föstudaginn 17. nóvember 2023

Umslögin voru opnuð og tilboðin flokkuð eftir tegundum lóða.

Tilboð í fjölbýlishúsalóðir 103.

Tilboð í par/raðhúsalóðir 215.

Tilboð í einbýlishúsalóðir 491.

Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 28. nóvember 2023.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

40. (2093). fundur

Bæjarstjóri kynnti úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða í 2. áfanga á Hnoðraholti

Bæjarráð samþykkir úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða í 2. áfanga á Hnoðraholti og felur bæjarstjóra að auglýsa lóðirnar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

37. (2090). fundur

Lagt fram yfirlit í vinnslu um stöðu úthlutunar og sölu lóða í eigu Garðabæjar ásamt því að gerð er grein fyrir uppbyggingu á svæðum í einkaeigu.

Bæjarráð samþykkir að lóðir í 2. áfanga norðurhluta Hnoðraholts verði auglýstar til úthlutunar þegar tillaga að breytingu á deiliskipulagi hefur fengið afgreiðslu í bæjarstjórn. Úthlutunar- og söluskilmálar verða lagðir fram til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir að einbýlishúsalóðir í Prýðahverfi og parhúslóðir í Kumlamýri verði auglýstar til sölu hjá fasteignasölum með 14 daga tilboðsfresti. Tilboð verða opnuð á fundi bæjarráðs.

Bæjarráð Garðabæjar

05

31. (2084). fundur

Í bréfinu er farið fram á frestun á greiðslu hluta byggingarréttargjalda þar til teikningar hafa verið samþykktar en að hámarki í eitt ár.

Bæjarráð telur að ekki geti komið til frestunar á hluta byggingarréttargjalds eins og farið er frá á í bréfinu þar sem það er ekki í samræmi við greiðsluskilmála í auglýstum úthlutunar- og söluskilmálum. Bæjarráð leggur áherslu á að gætt sé jafnræðis meðal bjóðenda og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara varðandi mögulegan greiðslufrest vegna skjalagerðar og frágangs á fjármögnun hjá bönkum.

Bæjarráð Garðabæjar

06

31. (2084). fundur

Bæjarritari fór yfir stöðu á úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti. Tilboðsgjafar hafa verið að vinna að skjalagerð og framgangi fjármögnunar vegna greiðslu á byggingarréttargjaldi.

Bæjarráð Garðabæjar

07

29. (2082). fundur

Lagt fram yfirlit yfir tilboð sem hafa verið staðfest og tilboðsgjafar hafa uppfyllt skilyrði úthlutunar- og söluskilmála.

Í þeim tilvikum sem tilboðsgjafar sem eiga hæsta tilboð hafa ekki uppfyllt skilyrði úthlutunar- og söluskilmála mun bæjarstjóri á grundvelli umboðs bæjarráðs frá fundi 11. júlí sl. samþykkja tilboð frá þeim aðilum sem næstir eru í röðinni hvað varðar tilboðsverð með fyrirvara um uppfyllt séu skilyrði í úthlutunar- og söluskilmálum.

Bæjarráð Garðabæjar

08

27. (2080). fundur

Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 4. júlí 2023 voru opnuð tilboð í lóðir í 1. áfanga norðurhluta Hnoðraholts. Alls bárust 299 tilboð sem skiptust þannig.

Tilboð í fjölbýlishúsalóðir 179

Tilboð í par/raðhúsalóðir 67

Tilboð í einbýlishúsalóðir 53

Stéttafélagið ehf. átti hæsta tilboð í allar fjölbýlishúsalóðir og allar raðhúsalóðir nema eina. Stéttafélagið hefur fallið frá tilboði sínu í lóðirnar að undanskildu tilboði í tvær fjölbýlishúsalóðir við Vorbraut 13 og 15 og eina raðhúsalengju við Útholt 35-41.

Sami einstaklingur átti hæsta tilboð í fjórar einbýlishúsalóðir en hefur fallið frá tilboði sínu í þrjár lóðir.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboðum frá eftirfarandi aðilum í lóðir í 1. áfanga norðurhluta Hnoðraholts þar sem lagt er til grundvallar hæsta verð í samræmi við úthlutunar- og söluskilmála. Tilboðin eru samþykkt með fyrirvara um að tilboðsgjafar uppfylli öll skilyrði um hæfi samkvæmt 5. tl. í úthlutunar- og söluskilmálum og 3. gr. úthlutunarreglna. Tilboðgjöfum er veittur frestur til kl. 16:00, fimmtudaginn 20. júlí nk. til að skila tilskildum gögnum.

Bæjarráð samþykkir veita bæjarstjóra umboð til að samþykkja tilboð í lóðir í þeim tilvikum sem tilboðsgjafar falla frá tilboðum sínum eða uppfylla ekki hæfisskilyrði. Skal þá lagt til grundvallar að taka tilboðum frá þeim aðilum sem næstir eru í röðinni hvað varðar tilboðsverð, enda séu uppfyllt skilyrði í úthlutunar- og söluskilmálum.

Fjölbýli

Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsverð

Sundaborg ehf. Vorbraut 1 78.214.500

Reir Verk ehf. Vorbraut 3 158.557.500

Klettás ehf. Vorbraut 5 188.000.000

Reir Verk ehf. Vorbraut 7 158.557.500

GG verk ehf. Vorbraut 9 161.500.000

GG verk ehf. Vorbraut 11 106.200.000

Stéttafélagið ehf. Vorbraut 13 124.150.000

Stéttafélagið ehf. Vorbraut 15 206.050.000

Klettás ehf. Vorbraut 17 105.500.000

Landslagnir Vorbraut 19 132.900.000



Raðhús

Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsverð

Bæjarhylur ehf. Útholt 1-3 48.001.000

Platún ehf. / Hestalíf ehf. Útholt 5-9 75.231.234

ESAIT ehf. Útholt 11-17 70.500.000

Rimahylur ehf. Útholt 19-25 105.800.000

Gráhyrna ehf. Útholt 27-33 122.200.000

Stéttafélagið ehf. Útholt 35-41 114.400.000

Einbýli

Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsverð

Bor ehf Útholt 2 30.000.000

Bor ehf Útholt 4 25.000.000

Bor ehf Útholt 6 25.000.000

Bor ehf Útholt 8 25.000.000

Landslagnir Útholt 10 30.150.000

Landslagnir Útholt 12 30.150.000

Ágúst Örn Arnarson/Elka Ósk Hrólfsdóttir Útholt 14 34.500.000

Bæjarráð Garðabæjar

09

26. (2079). fundur

Lögð voru fram 159 óopnuð umslög með tilboðum í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti, sbr. tilkynningu um sölu á byggingarrétti lóða á Hnoðraholti sem birt var á vef Garðabæjar á tímabilinu _.06-29.06.2023.

Tilboðin komu frá söluaðilum, þ.e. Torg - fasteignasölu, Garðatorg eignamiðlun og Fasteignamarkaðinum. Þá bárust umslög með tilboðum frá Miklaborg - fasteignasölu. Öll tilboð voru móttekin fyrir kl. 16:00, fimmtudaginn 29. júní 2023.

Eitt umslag með tilboði barst eftir að tilboðsfresti lauk og telst ekki gilt tilboð.

Umslögin voru opnuð og tilboðin flokkuð eftir tegundum lóða.

Tilboð í fjölbýlishúsalóðir 179

Tilboð í par/raðhúsalóðir 67

Tilboð í einbýlishúsalóðir 53

Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 11. júlí 2023.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

9. (924). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

11

23. (2076). fundur

Bæjarstjóri kynnti úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti.

Jafnframt kynnti bæjarstjóri samkomulag við Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. um úthlutun lóðanna við Vorbraut 2, 4 og 6 sem byggir á samkomulagi sem gert var vegna lóðanna við Strikið 1-7 árið 2006 og viðauka frá árinu 2015.

Bæjarráð samþykkir úthlutunarreglur og úthlutunarskilmála varðandi úthlutun og sölu byggingarréttar lóða á Hnoðraholti og felur bæjarstjóra að auglýsa lóðirnar.

Bæjarráð samþykkir samkomulag við Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. um úthlutun lóðanna við Vorbraut 2, 4 og 6.

Stefnt er að auglýsa úthlutun lóðanna um næstu helgi . Tilboðsfrestur er um tvær vikur eða til 29. júní nk. og gilda tilboð í tvær vikur eða til 13. júlí. Tilboð verða opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Garðabæjar kl. 08:00 þriðjudaginn 4. júlí 2023.

Bæjarstjóri fór nánar yfir drög að kynningarefni vegna auglýsingar um úthlutun lóðanna.

Bæjarráð Garðabæjar

12

21. (2074. fundur

Bæjarstjóri kynnti drög að úthlutunarreglum og drög að úthlutunarskilmálum vegna úthlutunar og sölu byggingarréttar lóða í 1. áfanga norðurhluta Hnoðraholts.

Bæjarráð Garðabæjar

13

18. (2071). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi að úthlutun lóða í 1. áfanga Hnoðraholts.