27. (2080). fundur
27. (2080). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
11.07.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2304477
01
Tilboð í byggingarrétt lóða á Hnoðraholti.
Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 4. júlí 2023 voru opnuð tilboð í lóðir í 1. áfanga norðurhluta Hnoðraholts. Alls bárust 299 tilboð sem skiptust þannig.
Tilboð í fjölbýlishúsalóðir 179
Tilboð í par/raðhúsalóðir 67
Tilboð í einbýlishúsalóðir 53
Stéttafélagið ehf. átti hæsta tilboð í allar fjölbýlishúsalóðir og allar raðhúsalóðir nema eina. Stéttafélagið hefur fallið frá tilboði sínu í lóðirnar að undanskildu tilboði í tvær fjölbýlishúsalóðir við Vorbraut 13 og 15 og eina raðhúsalengju við Útholt 35-41.
Sami einstaklingur átti hæsta tilboð í fjórar einbýlishúsalóðir en hefur fallið frá tilboði sínu í þrjár lóðir.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboðum frá eftirfarandi aðilum í lóðir í 1. áfanga norðurhluta Hnoðraholts þar sem lagt er til grundvallar hæsta verð í samræmi við úthlutunar- og söluskilmála. Tilboðin eru samþykkt með fyrirvara um að tilboðsgjafar uppfylli öll skilyrði um hæfi samkvæmt 5. tl. í úthlutunar- og söluskilmálum og 3. gr. úthlutunarreglna. Tilboðgjöfum er veittur frestur til kl. 16:00, fimmtudaginn 20. júlí nk. til að skila tilskildum gögnum.
Bæjarráð samþykkir veita bæjarstjóra umboð til að samþykkja tilboð í lóðir í þeim tilvikum sem tilboðsgjafar falla frá tilboðum sínum eða uppfylla ekki hæfisskilyrði. Skal þá lagt til grundvallar að taka tilboðum frá þeim aðilum sem næstir eru í röðinni hvað varðar tilboðsverð, enda séu uppfyllt skilyrði í úthlutunar- og söluskilmálum.
Fjölbýli
Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsverð
Sundaborg ehf. Vorbraut 1 78.214.500
Reir Verk ehf. Vorbraut 3 158.557.500
Klettás ehf. Vorbraut 5 188.000.000
Reir Verk ehf. Vorbraut 7 158.557.500
GG verk ehf. Vorbraut 9 161.500.000
GG verk ehf. Vorbraut 11 106.200.000
Stéttafélagið ehf. Vorbraut 13 124.150.000
Stéttafélagið ehf. Vorbraut 15 206.050.000
Klettás ehf. Vorbraut 17 105.500.000
Landslagnir Vorbraut 19 132.900.000
Raðhús
Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsverð
Bæjarhylur ehf. Útholt 1-3 48.001.000
Platún ehf. / Hestalíf ehf. Útholt 5-9 75.231.234
ESAIT ehf. Útholt 11-17 70.500.000
Rimahylur ehf. Útholt 19-25 105.800.000
Gráhyrna ehf. Útholt 27-33 122.200.000
Stéttafélagið ehf. Útholt 35-41 114.400.000
Einbýli
Tilboðsgjafi Lóð Tilboðsverð
Bor ehf Útholt 2 30.000.000
Bor ehf Útholt 4 25.000.000
Bor ehf Útholt 6 25.000.000
Bor ehf Útholt 8 25.000.000
Landslagnir Útholt 10 30.150.000
Landslagnir Útholt 12 30.150.000
Ágúst Örn Arnarson/Elka Ósk Hrólfsdóttir Útholt 14 34.500.000
Málsnúmer 2307049
02
Ásgarður Garðaskóli - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að staðsetja tímabundið færanlegar kennslustofur á lóð Garðaskóla við Ásgarð.
Málsnúmer 2306299
03
Spítalavegur 13A - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hjallastefnunni ehf., kt. 540599-2039, leyfi til að staðsetja tímabundið færanlegar kennslustofur á lóðinni við Spítalaveg 13A.
Málsnúmer 2307038
04
Smiðsbúð 7 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þingvangi ehf., kt. 671106-0750, leyfi til að staðsetja tímabundið sýningarhús á lóðinni við Smiðsbúð 7.
Málsnúmer 2307043
05
Vinastræti 1- 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar leyfi til að staðsetja tímabundið færanlegar kennslustofur á lóð Urriðaholtsskóla við Vinastræti 1-3.
Málsnúmer 2306323
06
Víðiholt 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lækjarkór ehf., kt. 690518-1470, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 25 íbúðum á lóðinni við Víðiholt 3.
Málsnúmer 2306291
07
Opnun tilboða í framkvæmdir við upphækkun gatnamóta í Urriðaholti.
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við upphækkun gatnamóta í Urriðaholti.
Topptækni ehf. kr. 143.828.000
Bergþór ehf. kr. 141.394.000
Ljósþing ehf. kr. 134.725.000
Garðvélar ehf. kr. 164.000.000
Gleipnir ehf. kr. 143.000.000
Kostnaðaráætlun kr. 134.877.500
Lagt fram bréf Samtaka iðnaðarins, dags. 7. júlí 2023 þar sem komið er á framfæri ábendingu frá Félagi skrúðgarðyrkjumeistara um að verkið feli í sér verkþætti sem falla undir verksvið skrúðgarðyrkju og verði forsvarsmenn verksins að vera skrúðgarðyrkjumeistarar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Ljósþings ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2003121
08
Erindi Megins lögmannsstofu varðandi lóð Álftanes Café, dags. 14.06.23.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra til ganga til samninga um kaup á landspildu og húsnæði Álftaneskaffi á grundvelli kaupsamnings að fjárhæð kr. 45.000.000. Um er að ræða eignarlóð sem er víkjandi í skipulagi.
Málsnúmer 2307087
09
Umsókn GP um niðurfellingu fasteignagjalda vegna friðlýsingar íbúðarhúss.
Bæjarráð samþykkir með vísan til heimildar í 5. mgr. 19. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 að fella niður álagðan fasteignaskatt árið 2023 að fjárhæð kr. 179.446 af einbýlishúsinu að Litlabæjarvör 4. Friðlýsing hússins var samþykkt af ráðherra með bréfi, dags. 3. nóvember 2021.
Málsnúmer 2307086
10
Endurskoðun á reglum um styrki til náms í leikskólakennarafræðum og menntunarfræði leikskóla fyrir starfsmenn leikskóla Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingum á reglum um styrki til náms í leikskólakennarafræðum og menntunarfræði leikskóla fyrir starfsmenn leikskóla Garðabæjar.
Málsnúmer 2307059
11
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru á útgáfu byggingarleyfis vegna byggingar bílskúrs við Aratún 36, dags. 04.07.23.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Málsnúmer 2307081
12
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi sex mánaða skýrslu Betri samgangna, dags. 05.07.23.
Lagt fram ásamt skýrslu Betri samgangna ohf. um stöðu og framgang verkefna í samræmi við ákvæði í hluthafasamkomulagi.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2307074
13
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi skipun stýrihóps um gagngera endurskoðun byggingarreglugerðar, dags. 04.07.23.
Í tilkynningunni kemur fram að innviðaráðherra hefur skipað stýrihóp til að vinna að gerð tillagna um gagngerar breytingar á regluverki byggingarmála með það að markmiði að einfalda umgjörð um byggingariðnað, lækka byggingarkostnað og leggja grunn að stöðugleika á húsnæðismarkaði. Hópurinn á að skila tillögum að úrbótum til ráðherra haustið 2024.
Málsnúmer 2307092
14
Bréf Bændasamtaka Íslands varðandi lausagöngu búfjár, dags. 06.07.23.
Í bréfinu er komið á framfæri við sveitarfélög sjónarmiðum Bændasamtakanna er varðar lausagöngu og ágang búfjár.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2303672
16