Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við upphækkun gatnamóta í Urriðaholti.

Málsnúmer 2306291

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

27. (2080). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við upphækkun gatnamóta í Urriðaholti.

Topptækni ehf. kr. 143.828.000
Bergþór ehf. kr. 141.394.000
Ljósþing ehf. kr. 134.725.000
Garðvélar ehf. kr. 164.000.000
Gleipnir ehf. kr. 143.000.000
Kostnaðaráætlun kr. 134.877.500

Lagt fram bréf Samtaka iðnaðarins, dags. 7. júlí 2023 þar sem komið er á framfæri ábendingu frá Félagi skrúðgarðyrkjumeistara um að verkið feli í sér verkþætti sem falla undir verksvið skrúðgarðyrkju og verði forsvarsmenn verksins að vera skrúðgarðyrkjumeistarar.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Ljósþings ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.