Umsókn GP um niðurfellingu fasteignagjalda vegna friðlýsingar íbúðarhúss.
Málsnúmer 2307087
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
27. (2080). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til heimildar í 5. mgr. 19. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 að fella niður álagðan fasteignaskatt árið 2023 að fjárhæð kr. 179.446 af einbýlishúsinu að Litlabæjarvör 4. Friðlýsing hússins var samþykkt af ráðherra með bréfi, dags. 3. nóvember 2021.