Beint í efni

21. (2074. fundur

30.05.2023
Bæjarráð Garðabæjar

21. (2074. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

30.05.2023

Kl. 08:00 - 08:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2206112

01

Fjárhagsáætlun 2023 - lántaka.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri kom á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 1.000.000.000. Lánið er jafngreiðslulán með lokagjalddaga 20. mars 2039, verðtryggt með 3,20% föstum vöxtum og án uppgreiðsluheimildar. Í skilmálum lánssamnings kemur fram að tilgangur lánsins er fjármögnun á verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, nánar tiltekið fjármögnun framkvæmda við byggingu Urriðaholtsskóla. Fyrir liggja drög að lánssamningi nr. 2306_34.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2302188

02

Kauptún 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lagernum Iceland ehf., kt. 451207-0750, leyfi fyrir stækkun núverandi verslunarhúss á lóðinni að Kauptúni 1.

Málsnúmer 2205229

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi synjun á umsókn lóðarhafa að Miðhrauni 18 um breytta legu byggingarreits.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar um að synja umsókn lóðarhafa að Miðhrauni 18 um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns. Í umsókninni er farið fram á að breyta lögun byggingarreits lóðarinnar að Miðhrauni 18 til að gera mögulegt að stækka húsið með viðbyggingu á lóðinni að götu. Fyrir liggur umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem fram kemur að umsókn um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar samrýmist ekki markmiðum deiliskipulags Molduhrauns m.a. um gagnkvæman umferðarrétt milli lóða og þá er einnig um að ræða að þrengt er að bílastæðum meðfram götu.

Málsnúmer 2305398

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts varðandi fjölgun íbúða við Þorraholt.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts sem gerir ráð fyrir að hámarksfjöldi íbúða við Þorraholt fjölgi úr 220 í 236.

Málsnúmer 2304507

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og tillögu að deiliskipulagi fyrir Vatnsendahverfi/Vatnsendahæð.

Lögð fram.

Málsnúmer 2304477

06

Úthlutun og sala lóða á Hnoðraholti.

Bæjarstjóri kynnti drög að úthlutunarreglum og drög að úthlutunarskilmálum vegna úthlutunar og sölu byggingarréttar lóða í 1. áfanga norðurhluta Hnoðraholts.

Málsnúmer 2208428

07

Greinargerð íþrótta- og tómstundaráðs varðandi nýtingu á óráðstöfuðu rými í Miðgarði, dags. í maí 2023.

Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar sem haldinn var 18. ágúst 2022 var samþykkt tillaga um að fela íþrótta- og tómstundaráði að hefja vinnu við að móta hugmyndir um notkun á óráðstöfuðu rými í Miðgarði.

Íþrótta- og tómstundaráð hefur síðan í ágúst 2022 unnið að mótun tillögu að nýtingu rýmisins. Við mótun tillögunnar hefur verið haft samráð við íbúa, frjáls félög í Garðabæ, ungmennaráð, öldungaráð, félög eldri borgara, Íþróttasamband fatlaðra, Frístundaheimilið Garðahraun og fjölskyldusvið Garðabæjar. Einnig hefur verið rætt við sjálfstætt starfandi aðila á sviði heilsutengdrar starfsemi.

Við gerð tillögunnar þarf að taka mið af ákveðnum þáttum í frumhönnun hússins er varða m.a. lagnakerfi, loftræstikerfi, flóttaleiðir og staðsetningu stigahúsa.

Greinargerð ráðsins um tillögu að nýtingu rýmisins byggir á hugmyndum sem fram komu hjá samráðsaðilum um fjölnota sali og sérhæfð rými. Í tillögu ráðsins er lagt til grundvallar að sérhæfð rými fái aðstöðu á 2. hæð og að á 3. hæð verði fjölnota salir. Í greinargerðinni er einnig gerð grein fyrir hugmyndum sem fram komu hjá samráðsaðilum en þykja ekki getað komið til greina vegna innra skipulags hússins s.s. stærð rýma og lofthæðar

Bæjarráð vísar greinargerð ráðsins um tillögu um nýtingu óráðstafs rýmis á 2. og 3. hæð Miðgarðs til bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2211332

08

Endurnýjun samninga við Ungmennafélag Álftaness 2023-2025.

Bæjarráð samþykkir að vísa endurnýjun samstarfssamningi við Ungmennafélag Álftaness til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2305492

09

Ályktun frá sameiginlegum fundi svæðisskipulagsnefnda höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja um greiðar, vistvænar og öruggar samgöngur milli höfuðborgarsvæðis og Suðurnesja.

Bæjarráð vísar ályktuninni til kynningar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2301003

10

Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi aðgerðaráætlun vegna heildarendurskoðunar á þjónustu við eldra fólk, dags. 25.05.23.

Í tilkynningunni kemur fram að KPMG hefur unnið kostnaðar- og ábatagreiningu fyrir stjórnvöld sem veitir sýn á fjárhagsgögn ríkis og sveitarfélaga og samkeyrir við lýðfræðileg gögn.

Bæjarráð vísar málinu til kynningar í fjölskylduráði og öldungaráði.

Málsnúmer 2305569

11

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2023

Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2023. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð föstudaginn 2. júní 2023, kl. 17:00 í Sveinatungu.

Málsnúmer 2305386

12

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á kosningalögum, nr. 112/2021 (lækkun kosningaaldurs), 497. mál, dags. 17.05.23.

Lagt fram.

Málsnúmer 2304460

13

Staða kjarasamningsviðræðna við Starfsmannafélag Garðabæjar.

Í dag fram að hádegi þriðjudag, allan daginn á morgun miðvikudag og fram að hádegi á fimmtudag gildir vinnustöðvum félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa á leikskólum. Á mánudaginn 5. júní nk. tekur gildi vinnustöðvun félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa á leikskólum og á bæjarskrifstofum og gildir til 5. júlí nk.. Ótímabundin vinnustöðvun tekur gildi 5. júní nk. í íþróttamannvirkjum og sundlaugum í Ásgarði og við Breiðumýri, hafi samningar ekki náðst eða vinnustöðvun aflýst.