Kjarsamningur Starfsmannafélags Garðabæjar
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
23. (2076). fundur
Á laugardagsmorgun náðust samningar í kjaradeilu Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB. Vinnustöðvum starfsmanna í starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa í leikskólum, á bæjarskrifstofum og íþróttamannvirkjum og sundlaugum í Ásgarði og Breiðumýri hefur verið aflýst. Sundlaugar og íþróttamannvirki opnuðu um helgina og starfsmenn leikskóla og bæjarskrifstofa komu til starfa í gærmorgun.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Farið yfir stöðu mála vegna verkfalls félaga í Starfsmannafélagi Garðabæjar. Starfsemi leikskóla er farin af stað með eðlilegum hætti.
Farið yfir stöðu mála vegna verkfalls starfsfólks í leikskólum sem er í Starfsmannafélagi Garðabæjar. Verkfalli var aflýst þann 10. júní og er starfsemi leikskóla er komin í eðlilegt horf. Áhrif verkfallsins hafði mismikil áhrif á starfsemi leikskóla bæjarins. Álitamál sem uppkomu í verkfallinu eru ennþá óleyst. Stjórnendur sýndu mikla útsjónarsemi og lögðu á sig talsverða vinnu við að skipuleggja opnun fyrir börn og starfsfólk. Verkfallið hafði mismikil áhrif á foreldra og leikskólabörn.
Bæjarráð Garðabæjar
04
22. (2075). fundur
Í gær hófst vinnustöðvun félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa á leikskólum og á bæjarskrifstofum og gildir til 5. júlí nk. Ótímabundin vinnustöðvun hófst einnig hjá starfsmönnum í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa í íþróttamannvirkjum og sundlaugum í Ásgarði og við Breiðumýri.
Sundlaugar í Garðabæ eru lokaðar í verkfallsaðgerðum, bæði í Ásgarði og Álftanesi. Það sama gildir um íþróttamiðstöðvarnar í Ásgarði og við Breiðumýri á Álftanesi og falla allar íþróttaæfingar niður sem eiga þar að vera. Hluti starfsfólks á bæjarskrifstofum er einnig í verkfalli. Þjónustuver lokað og takmörkuð símsvörun.
Skerðingar á þjónustu leikskóla í Garðabæ er í svipuðum mæli og verið hefur undanfarnar vikur.
Bæjarráð Garðabæjar
05
21. (2074. fundur
Í dag fram að hádegi þriðjudag, allan daginn á morgun miðvikudag og fram að hádegi á fimmtudag gildir vinnustöðvum félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa á leikskólum. Á mánudaginn 5. júní nk. tekur gildi vinnustöðvun félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa á leikskólum og á bæjarskrifstofum og gildir til 5. júlí nk.. Ótímabundin vinnustöðvun tekur gildi 5. júní nk. í íþróttamannvirkjum og sundlaugum í Ásgarði og við Breiðumýri, hafi samningar ekki náðst eða vinnustöðvun aflýst.
Bæjarráð Garðabæjar
06
20. (2073). fundur
Lögð fram tilkynning um niðurstöðu atkvæðagreiðslu félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar um verkföll. Í tilkynningunni kemur fram að samþykkt hefur verið verkfallsboðun á leikskólum, á bæjarskrifstofum, íþróttamannvirkjum og sundlaugum.
Hjá félagsfólki sem starfar í leikskólum Garðabæjar og á bæjarskrifstofum Garðabæjar frá og með mánudeginum 5. júní 2023 til miðvikudagsins 5. júlí 2023.
Hjá félagsfólki sem starfar í íþróttamannvirkjum og sundlaugum í Ásgarði og við Breiðumýri á Álftanesi er boðað ótímabundið verkfall frá og með mánudeginum 5. júní 2023.
Farið var yfir störf sem eru undanþegin verkfalli og rætt um mögulegar undanþágubeiðnir vegna starfa sem nauðsynleg eru til að tryggja almannaöryggi og aðbúnað eldri borgara, barna og ungmenna og fatlaðs fólks.
Tímabundin vinnustöðvun félagsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa í leikskólum heldur áfram í þessari viku. Almennt hefur gengið vel að aðlaga starfsemina við þessar aðstæður þó að veruleg þjónustuskerðing hafi verið, tveir leikskólar lokaðir og takmörkuð starfsemi á öðrum leikskólum.
Bæjarstjóri skýrði frá því að Samband íslenskra sveitarfélaga hafi haldið reglulega upplýsingafundi með framkvæmdastjórum sveitarfélaganna um stöðu mála.
Bæjarráð Garðabæjar
07
19. (2072). fundur
Verkfall starfsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa á leikskólum bæjarins hófst í gær og mun standa til hádegis í dag. Starfsemi leikskólanna hefur raskast verulega og hafa foreldra þurft að vera heima með börnum sínum a.m.k. hluta úr degi. Verkföll hafa verið boðuð í næstu viku á mánudag 22. maí, þriðjudag 23. maí og fimmtudag 25 maí frá opnun leikskólanna til kl. 12:00 að hádegi
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór nánar yfir stöðuna í leikskólum. Tveir leikskólar eru lokaðir en í öðrum leikskólum bæjarins er veitt takmörkuð þjónusta.
Bæjarráð Garðabæjar
08
18. (2071). fundur
Samningar í kjaradeilu Samband íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar hafa ekki náðst og munum fyrstu verkfallsaðgerðir sem boðaðar hafa verið hefjast 15. og 16. maí. Starfsmenn í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa í leikskólum Garðabæjar munu leggja niður störf 15. maí og fram að hádegi 16. maí.
Bæjarráð Garðabæjar
09
17. (2070). fundur
Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstarfsmannafélaga hafa ekki náð saman um gerð nýs kjarasamnings og hefur verið boðað til verkfalls meðal félagsmanna Starfsmannafélags Garðabæjar sem starfa hjá leikskólum Garðabæjar frá og með 15. maí 2023.
Staða málsins rædd.