17. (2070). fundur
17. (2070). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
02.05.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2304503
01
Útför Ólafs G. Einarssonar, heiðursborgara Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir að Garðabær í samvinnu við aðstandendur Ólafs G. Einarssonar annist undirbúning útfarar hans og taki að sér greiðslu kostnaðar við útförina. Ólafur lést 27. apríl sl.
Ólafur var tilnefndur heiðursborgari á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 7. janúar 2010 en þá voru liðin um 50 ár frá því að Ólafur var ráðinn sveitarstjóri í Garðahreppi. Ólafur tók sæti í hreppsnefnd Garðabæjar árið 1966 og var forseti fyrstu bæjarstjórnar Garðabæjar í ársbyrjun 1976. Ólafur var kosinn alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1971 og sat á þingi til 1999. Hann var formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins 1979-1991, menntamálaráðherra 1991-1995 og forseti Alþingis 1995-1999.
Bæjarráð vottar aðstandendum Ólafs samúð vegna fráfalls hans.
Málsnúmer 2208619
02
Ársreikningur Garðabæjar 2022 - endurskoðunarskýrsla.
Lögð fram skýrsla endurskoðenda varðandi ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2022. Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkvæmd endurskoðunar, helstu á áherslum, niðurstöðum og öðrum mikilvægum atriðum.
Málsnúmer 2303306
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn leyfi til fornleifarannsókna við seljarústir Vífilsstaðasel í landi Vífilsstaða.
Lögð fram.
Málsnúmer 2210172
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 21.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 21. Tillagan sem heimilar að svalir nái út fyrir byggingarreit var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2301315
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots vegna lóðarinnar við Landakot.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots vegna lóðarinnar við Landakot. Tillagan sem heimilar skiptingu lóðarinnar og tilfærslu á byggingarreit var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2303016
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Mávanes 23.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Mávanes 23. Tillagan sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu milli bílskúrs og núverandi húss var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2301018
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn Landsnets hf. um breytingu á aðalskipulagi vegna breyttrar legu Hamraneslínu 1 og 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja bókun skipulagsnefndar þar sem fram kemur að nefndin getur ekki mælt með því að breyting verði gerð á aðalskipulagi Garðabæjar sem geri ráð fyrir jarðstreng í landi Garðabæjar eins og lagt er til í umsókn Landsnets. Í bókuninni er jafnframt lögð áhersla á að Garðabær og Landsnet skoði áfram og eigi samstarf um með hvaða hætti skipulagi raforkuflutningskerfis Landsnets innan bæjarmarka Garðabæjar á næstu áratugum verði best fyrirkomið.
Málsnúmer 2212304
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása vegna lóða við Eskiás.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Eskiás 6. Tillagan sem heimilar breytingu á lögun byggingarreits lóðarinnar var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 2301491
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðarinnar við Kauptún 4. Tillagan sem gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar um 375 fm til norður var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Ingvar Arnarson greiðir atkvæði gegn tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns.
Málsnúmer 2304320
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi vegna lóðar veitingastaðar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits til vesturs að lóðarmörkum. Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun en Hlið á Álftanesi er friðlýst svæði sem fólkvangur.
Málsnúmer 2212321
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi útgáfu byggingarleyfis vegna sólskála á lóðinni við Löngumýri 19.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu á byggingarleyfi samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna byggingar sólskála á lóðinni við Löngumýri 19. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 2206112
12
Staða framkvæmda við viðgerðir á skólahúsnæði.
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir framkvæmdir við viðgerðir á skólahúsnæði sem staðið hafa yfir undanfarið vegna rakaskemmda. Almennt hafa framkvæmdir gengið vel og verið er að undirbúa framkvæmdir sem farið verður í eftir skólaslit í vor.
Sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir viðbrögðum gagnvart aðstæðum starfsmanna vegna álags o.fl.
Bókfærður kostnaður við viðgerða á skólahúsnæði vegna rakaskemmda 2022 og 2023 nemur um 400 mkr.
Málsnúmer 2304344
13
Bréf Golfklúbbsins Setbergs varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2023, dags. 18.04.23.
Bæjarráð samþykkir að veita Golfklúbbnum Setberg styrk að fjárhæð kr. 524.863 til greiðslu fasteignagjalda árið 2023.
Málsnúmer 2304392
14
Ársreikningur Betri samgangna ohf. fyrir árið 2022.
Lagður fram ársreikningur Betri Samgangna ohf. fyrir árið 2022 ásamt skýrslu stjórnar.
Málsnúmer 2304447
15
Tillaga að gjaldskrá skólagarða og matjurtagarða sumarið 2023.
Bæjarráð samþykkir tillögu garðyrkjustjóra að gjaldskrá skólagarða og matjurtagarða 2023.
Skólagarðar kr. 5.500
Matjurtagarðar kr. 5.500
Málsnúmer 2304460
16
Staða kjarasamningsviðræðna við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstarfsmannafélaga hafa ekki náð saman um gerð nýs kjarasamnings og hefur verið boðað til verkfalls meðal félagsmanna Starfsmannafélags Garðabæjar sem starfa hjá leikskólum Garðabæjar frá og með 15. maí 2023.
Staða málsins rædd.
Málsnúmer 2304494
17
Bréf Kvenfélags Garðabæjar varðandi kaffihlaðborð í Sveinatungu á hátíðarhöldum 17. júní, dags. 27.04.23.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi um að hátíðarhlaðborð á 17. júní 2023 verði í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar ásamt því að vera á innitorgi á Garðatorgi. Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu og úrlausnar bæjarstjóra.
Málsnúmer 2304350
18
Samkomulag ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppfærslu samgöngusáttmála.
Í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu, dags 14. mars 2023 kemur fram að samkomulag hafi náðst um að hefja undirbúning að því að uppfæra samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið. Viðræðuhópur fulltrúa ríkisins og sveitarfélaganna hefur tekið til starfa og er unnið að uppfærslu kostnaðaráætlana ásamt því að fara yfir tekjuhlið sáttmálans og yfirferð á stjórnskipulagi sáttmálans. Einnig er stefnt að því að viðræðuhópur ríkis og sveitarfélaga ljúki við frágang draga að samningi um eflingu almenningssamgangna þannig að rekstur þeirra verði tryggður með aðkoma sveitarfélaga og ríkisins.
Stefnt er að því að tillögur að uppfærslu sáttmálans og tillaga að samningi um eflingu almenningssamgangna verði lagðar fram til afgreiðslu hjá bæjarstjórnum sveitarfélaganna í byrjun júní.
Málsnúmer 2304456
19
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um kosningalög o.fl. (ýmsar breytingar), 945. mál, dags. 26.04.23.
Lagt fram.
Málsnúmer 2304431
20
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu o.fl.)922. mál, dags. 25.04.23.
Lagt fram.
Málsnúmer 2304430
21
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Mennta- og skólaþjónustustofu, 956. mál, dags. 26.04.23.
Lagt fram.
Málsnúmer 2304504
22
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 976. mál, dags. 28.04.23.
Lagt fram.