Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása vegna lóða við Eskiás.

Málsnúmer 2212304

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

17. (2070). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Eskiás 6. Tillagan sem heimilar breytingu á lögun byggingarreits lóðarinnar var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda að lokinni auglýsingu.
Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á lögun byggingarreits á lóðinni Eskiás 6.
Tillagan var í auglýsingu frá 22.febrúar til 5.apríl.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

3. (918). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna lóðarinnar við Eskiás 6: Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit lóðarinnar til að aðlaga betur íbúðir í byggingu hússins.“ (Mál nr. 2212304)

Bæjarráð Garðabæjar

04

7. (2060). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Grunda og Ása samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga vegna lóðarinnar við Eskiás 6. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit lóðarinnar til að aðlaga betur íbúðir í byggingu hússins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskiplags Ása og Grunda sem nær til lóðarinnar Eskiás 6. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreit til að laga hann að þeim íbúagerðum sem hafa verið þróaðar við uppbyggingu við Eskiás.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar sbr. 1.mgr.43.gr. og 31.gr.skipulagslaga nr.123/2010