6. fundur
6. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
27.04.2023
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
- Egill Daði Gíslason - verkfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Almar Guðmundsson bæjarstjóri sat fundinn.
Dagskrá
01
Aðalskipulagsbreyting - Hamraneslína 1 og 2
Fyrir er tekið bréf Landsnets, dags.23.mars 2023, sbr. einnig erindi Landsnets, dags. 14.desember 2022 þar sem farið er fram á við bæjaryfirvöld í Garðabæ að gerð verði breyting á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem geri ráð fyrir því að Hamraneslína verði lögð í jörð í Garðabæ frá sveitarfélagsmörkum við Hafnarfjörð, þvert yfir Gráhelluhraun og upp hlíðina milli Sandahlíðar og Flóðahjalla að jarðamörkum Setbergs og Urriðakots, alls um 1 km innan Garðabæjar.
Skipulagsnefnd telur að Landsnet þurfi að rökstyðja betur ástæðu þess að þörf sé á að jarðstrengur í þeirri legu sem fram kemur í tillögu Landsnets verður lagður í landi Garðabæjar
Skipulagsnefnd bendir á að ef Hamraneslína eigi að fá að standa í allt að 30 ár að þá þurfi mannvirkið að eiga sér stoð í aðalskipulagi hvort sem hún er loftlína eða jarðstrengur. Núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir því að Hamraneslína sé víkjandi og verði fjarlægð þegar að Lyklafellslína hefur tekið við hlutverki hennar sem raforkuflutningsleið. Hér er því um grundvallarbreytingu að ræða sem þarfnast ýtarlegri skoðunar.
Skipulagsnefnd leggur því til að skoðað verði á þessu stigi málsins að Hamraneslína verði áfram loftlína eins og verið hefur að bæjarmörkum og að hún fari í jörð vestan Kaldársselsvegar innan staðarmarka Hafnarfjarðar. Við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar mætti síðan skoða þá kosti sem til álita gæti komið um háspennulínur, Hamraneslínur og Hnoðraholtslínu, m.a. í jörð eða sem loftlínur. Þar hlýtur lega jarðstrengs meðfram Flóttamannavegi að koma til álita.
Skipulagsnefnd getur því ekki mælt með því að breyting verði gerð á aðalskipulagi Garðabæjar sem geri ráð fyrir jarðstreng eins og tillaga Landsnets leggur til.
Skipulagsnefnd telur eðlilegt og leggur áherslu á að Garðabær og Landsnet skoði áfram og eigi samstarf um með hvaða hætti skipulagi raforkuflutningskerfis Landsnets innan Garðabæjar á næstu áratugum verði best fyrirkomið .
02
Hlið - Deiliskipulagsbreyting - Veitingahús
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hliðs á Álftanesi sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits veitingahúss til vesturs að lóðarmörkum.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hliðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna Umhverfisstofnun.
03
Pikkoló - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Skipulagsnefnd felur umhverfissviði að móta tillögu að deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir bílastæði og byggingarreitum fyrir smáhýsi eða annan búnað fyrir þjónustu dreifingaraðila við bílastæði Sjálandsskóla og veitingahússins Sjálands. Þar skal einnig gera ráð fyrir grenndargámastöð.
04
Pósturinn póstbox - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Skipulagsnefnd felur umhverfissviði að móta tillögu að deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir bílastæði og byggingarreitum fyrir smáhýsi eða annan búnað fyrir þjónustu dreifingaraðila við bílastæði Sjálandsskóla og veitingahússins Sjálands. Þar skal einnig gera ráð fyrir grenndargámastöð.
05
Rjúpnahæð 5- Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Fyrirspurn er vísað til yfirstandandi vinnu við mótun deiliskipulagstillögu fyrir Hæðahverfi. (Bæjargil 2.áfangi)
06
Félagssvæði Sóta. Deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi hesthúsabyggðar í Breiðumýri (Sótasvæði) að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd fellst á að taka til greina eitt erindi með athugasemdum sem barst eftir að fresti til að skila inn athugasemdum lauk.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
07
Móar, endurskoðað deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Móa að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum sem borist hafa. Einnig lögð fram fundargerð kynningarfundar sem haldinn var 9.mars sl.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
08
Kauptún 4 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kauptúns sem nær til lóðarinnar Kauptún 4 að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar um 375 m2 til norðurs.
Tillagan var í auglýsingu frá 22.febrúar til 5.apríl.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Kauptúns í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
09
Deiliskipulagsbreytingu á Eskiás - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda að lokinni auglýsingu.
Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á lögun byggingarreits á lóðinni Eskiás 6.
Tillagan var í auglýsingu frá 22.febrúar til 5.apríl.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
10
Landakot, dsk br
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots á Álftanesi að lokinni auglýsingu.Tillagan gerir m.a.ráð fyrir skiptingu lóðar Landakots og tilfærslu á byggingarreit bílageymslu.
Tillagan var í auglýsingu frá 22.febrúar til 5.apríl.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Deildar og Landakots í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
11
Víkurgata 21 - Svalir út fyrir byggingarreit
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Víkurgata 21 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir heimild til að svalir nái út fyrir byggingarreit.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast í því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
12
Gilsbúð 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemdum sem sem borist hafa. Skipulagsnefnd fellst á að taka til greina eitt erindi með athugasemdum sem barst eftir að fresti til að skila inn athugasemdum lauk.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
13
Mávanes 23 - stækkun byggingareits -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 23 að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur í framhaldi af bílageymslu stækki.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast í því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Arnarness í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
14
Langamýri 19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Sótt er um byggingu sólskála við suðurhlið húss.
Engar athugasemdir hafa borist.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
15
Umsókn leyfi til fornleifarannsókna við seljarústir Vífilsstaðasel í landi Vífilsstaða.
Lögð fram umsókn um leyfi til fornleifarannskókna við rústir Vífilsstaðasels í landi Vífilsstaða.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að leyfi verði veitt fyrir rannsókninni.
Nefndin minnir á að samkvæmt ákvæðum deiliskiplulags skal ekki gróðursetja nær fornminjum en 20 metrar. Æskilegt er að fornleifarannsókn myndi einnig skoða gróðurfar umhverfis selið og hvort í því gæti falist varðveislugildi.