Tilkynning Landsnets um breytingu á áformum um að leggja Hamraneslínu í jörð innan bæjarmarka Garðabæjar, dags. 09.05.23.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (2072). fundur
Í tilkynningunni kemur fram að Landsnet hefur ákveðið að breyta upphaflegum áformum um legu Hamraneslínu með þeim hætti að ekki verði farið með jarðstreng innan bæjarmarka Garðabæjar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
7. (922). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir bókun skipulagsnefndar þar sem fram kemur að nefndin getur ekki mælt með því að breyting verði gerð á aðalskipulagi Garðabæjar sem geri ráð fyrir jarðstreng í landi Garðabæjar eins og lagt er til í umsókn Landsnets. Í bókuninni er jafnframt lögð áhersla á að Garðabær og Landsnet skoði áfram og eigi samstarf um með hvaða hætti skipulagi raforkuflutningskerfis Landsnets innan bæjarmarka Garðabæjar á næstu áratugum verði best fyrirkomið.“ (Mál nr. 2301018)
Bæjarráð Garðabæjar
03
17. (2070). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja bókun skipulagsnefndar þar sem fram kemur að nefndin getur ekki mælt með því að breyting verði gerð á aðalskipulagi Garðabæjar sem geri ráð fyrir jarðstreng í landi Garðabæjar eins og lagt er til í umsókn Landsnets. Í bókuninni er jafnframt lögð áhersla á að Garðabær og Landsnet skoði áfram og eigi samstarf um með hvaða hætti skipulagi raforkuflutningskerfis Landsnets innan bæjarmarka Garðabæjar á næstu áratugum verði best fyrirkomið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
6. fundur
Fyrir er tekið bréf Landsnets, dags.23.mars 2023, sbr. einnig erindi Landsnets, dags. 14.desember 2022 þar sem farið er fram á við bæjaryfirvöld í Garðabæ að gerð verði breyting á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem geri ráð fyrir því að Hamraneslína verði lögð í jörð í Garðabæ frá sveitarfélagsmörkum við Hafnarfjörð, þvert yfir Gráhelluhraun og upp hlíðina milli Sandahlíðar og Flóðahjalla að jarðamörkum Setbergs og Urriðakots, alls um 1 km innan Garðabæjar.
Skipulagsnefnd telur að Landsnet þurfi að rökstyðja betur ástæðu þess að þörf sé á að jarðstrengur í þeirri legu sem fram kemur í tillögu Landsnets verður lagður í landi Garðabæjar
Skipulagsnefnd bendir á að ef Hamraneslína eigi að fá að standa í allt að 30 ár að þá þurfi mannvirkið að eiga sér stoð í aðalskipulagi hvort sem hún er loftlína eða jarðstrengur. Núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir því að Hamraneslína sé víkjandi og verði fjarlægð þegar að Lyklafellslína hefur tekið við hlutverki hennar sem raforkuflutningsleið. Hér er því um grundvallarbreytingu að ræða sem þarfnast ýtarlegri skoðunar.
Skipulagsnefnd leggur því til að skoðað verði á þessu stigi málsins að Hamraneslína verði áfram loftlína eins og verið hefur að bæjarmörkum og að hún fari í jörð vestan Kaldársselsvegar innan staðarmarka Hafnarfjarðar. Við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar mætti síðan skoða þá kosti sem til álita gæti komið um háspennulínur, Hamraneslínur og Hnoðraholtslínu, m.a. í jörð eða sem loftlínur. Þar hlýtur lega jarðstrengs meðfram Flóttamannavegi að koma til álita.
Skipulagsnefnd getur því ekki mælt með því að breyting verði gerð á aðalskipulagi Garðabæjar sem geri ráð fyrir jarðstreng eins og tillaga Landsnets leggur til.
Skipulagsnefnd telur eðlilegt og leggur áherslu á að Garðabær og Landsnet skoði áfram og eigi samstarf um með hvaða hætti skipulagi raforkuflutningskerfis Landsnets innan Garðabæjar á næstu áratugum verði best fyrirkomið .
Bæjarráð Garðabæjar
05
14. (2067). fundur
Í bréfinu er brugðist við bókun skipulagsnefndar frá fundi 23. febrúar sl. og bókun bæjarráðs frá 28. febrúar sem voru kynntar Landsneti með bréfi, dags. 9. mars 2023 ásamt því að gera nánari grein fyrir ástæðu umsóknar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytingar á legu Hamraneslínu innan bæjarmarka Hafnarfjarðar og Garðabæjar.
Bæjarráð vísar bréfinu ásamt fylgigögnum til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
3. fundur
Lagt fram erindi Landsnets um breytingu á aðalskipulagi vegna áforma um lagningu Hamraneslínu í jörð í Hafnarfirði og innan Garðabæjar þvert yfir Gráhelluhraun og upp í Sandahlíð í Setbergslandi.
Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
1. fundur
Erindi vísað til frekari skoðunar hjá Umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
08