2. (2055). fundur
2. (2055). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
10.01.2023
Kl. 08:00 - :
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Bakkaflöt 5 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Pálma Jónssyni, kt. 050479-4049, leyfi fyrir breytingum á þegar samþykktum teikningum af viðbyggingu við einbýlishúsið að Bakkaflöt 5.
02
Krókamýri 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vilhjálmi Pálmasyni, kt. 011191-2159, leyfi fyrir breytingu á skráningu og endurgerð teikninga einbýlishússins að Krókamýri 16.
03
Hestamýri 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hestamýri ehf., kt. 680122-1480, leyfi til að byggja fyrsta áfanga fjölbýlishúss með 28 íbúðum að Hestamýri 1-3.
04
Hólmatún 57 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Atla Andréssyni, kt. 271181-3109, leyfi fyrir stækkun einbýlishússins að Hólmatúni 57.
05
Skólabraut 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita umhverfissviði Garðabæjar tímabundið leyfi til uppsetningar á lausum kennslustofum við Hofsstaðaskóla.
06
Smáraflöt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ara Guðmundssyni, kt. 071263-5929, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi einbýlishús að Smáraflöt 3.
07
Urriðaholtsstræti 18 (01-01) - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita U 14-16 leigurými ehf., kt. 560320-1240, leyfi fyrir léttum veggjum og niðurteknu lofti að hluta í verslunarrými í fjölbýlishúsinu að Urriðaholtsstræti 18.
08
Vinastræti 16 (0102) - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kiosk ehf., kt. 581005-1050, leyfi fyrir innri breytingu á verslunarrými í fjölbýlishúsinu að Vinastræti 16.
09
Tillaga að gjaldskrá stuðningsþjónustu fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá stuðningsþjónustu fyrir árið 2023.
10
Tillaga að reglum um greiðslur til dagforeldra árið 2023.
Bæjarráð samþykkir reglur um greiðslur til dagforeldra árið 2023.
11
Tillaga að gjaldskrá fyrir Bókasafn Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá Bókasafns Garðabæjar fyrir árið 2023.
12
Bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi úthlutun stofnframlaga 2022, dags. 15.12.22.
Í bréfinu kemur fram að umsókn Garðabæjar um stofnframlag vegna byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk að Brekkuási 2 hefur verið samþykkt.
13
Bréf Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins varðandi styrk, dags. 29.12.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2023.
14
Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi stöðu aðgerða í framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017-2021, dags. 30.12.22.
Lögð fram og vísað til kynningar í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks og fjölskylduráði.
15
Tilkynning frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu varðandi drög að aðgerðaráætlun um þjónustu við eldra fólk, dags. 21.12.22.
Lögð fram og vísað til kynningar í öldungaráði og fjölskylduráði.
16
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi framlög Jöfnunarsjóðs árið 2023 vegna samþættingar á þjónustu í þágu farsældar barna, dags. 04.01.23.
Lögð fram.
17
Erindi Hjálpræðishersins varðandi aðstoð með rekstur dagseturs fyrir heimilislausa, dags. 14.12.22.
Bæjarráð vísar erindinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Bæjarstjóri og sviðsstjóri fjölskyldusviðs gerðu grein fyrir vinnu á vegum SSH varðandi greiningu á stöðu heimilislausra utan Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir niðurstöður liggi fyrir í lok febrúar.
Fylgiskjöl
18
Bréf Lionsklúbbs Álftaness varðandi afnot að íþróttahúsi fyrir þorrablót, dags 05.01.23.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
19
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Lionsklúbbs Álftaness um tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti 4. febrúar 2023.
Lögð fram umsókn Lionsklúbbs Álftaness um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga á þorrablóti í íþróttahúsi Álftaness 4. febrúar 2023. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
20
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi á þorrablóti 20. janúar 2023.
Lögð fram umsókn Ungmennafélags Stjörnunnar um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga á þorrablóti í íþróttahúsinu Mýrinni 20. janúar 2023. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
21
Umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna fyrirspurnar Landsnets um matsskyldu framkvæmda við breytingu á Hamraneslínu, dags. 16.12.22
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Í beiðninni kemur fram að frestur til að skila umsögn er til 19. janúar nk. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara fram á viðbótarfrest til að skila umsögn til 19. febrúar nk.
Fylgiskjöl
22