Bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar varðandi úthlutun stofnframlaga 2022, dags. 15.12.22.
Málsnúmer 2209509
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
2. (2055). fundur
Í bréfinu kemur fram að umsókn Garðabæjar um stofnframlag vegna byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk að Brekkuási 2 hefur verið samþykkt.
Bæjarráð Garðabæjar
02
41. (2048). fundur
Bæjarráð staðfestir umsókn Garðabæjar til Húsnæðis og mannvirkjastofnunar um stofnframlag vegna byggingar íbúðakjarna við Brekkuás 2. Jafnframt er því lýst yfir að Garðabær mun veita 12% stofnframlag af stofnvirði mannvirkisins og í fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir fjármögnun framkvæmda við byggingu íbúðakjarna.