41. (2048). fundur
41. (2048). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
15.11.2022
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - varaáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Fjárhagsáætlun 2023 (2023-2026).
Lagt fram yfirlit yfir ábendingar sem borist hafa fá íbúum varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2023. Upplýsingastjóri gerði nánari grein fyrir framsetningu ábendinga á samráðsgátt fyrir íbúa um fjárhagsáætlun.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og sviðsstjóri umhverfissviðs fóru yfir samantekt á óskum um viðbótarfjárveitingar við frumvarp að fjárhagsáætlun.
Rætt var um álagningu fasteignagjalda ásamt breytingum á gjaldskrám.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
02
Litlatún 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410 leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi vegna breyttrar notkunar húsnæði (01-04) við Litlatún 3.
03
Hraungata 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þorgeiri Inga Haraldssyni, kt. 260979-5589, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús við Hraungötu 12.
04
Umsókn Garðabæjar um stofnframlag vegna byggingar íbúðakjarna við Brekkuás 2.
Bæjarráð staðfestir umsókn Garðabæjar til Húsnæðis og mannvirkjastofnunar um stofnframlag vegna byggingar íbúðakjarna við Brekkuás 2. Jafnframt er því lýst yfir að Garðabær mun veita 12% stofnframlag af stofnvirði mannvirkisins og í fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir fjármögnun framkvæmda við byggingu íbúðakjarna.
05
Minnisblað um stöðu tónlistarkennslu í Garðabæ, dags. 20.10.22.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir helstu atriðum minnisblaðsins.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umfjöllunar í skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar og til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.
Fram kom ósk um að fá upplýsingar varðandi aldurgreiningu umsókna á biðlista.
Fylgiskjöl
06
Bréf Félags heyrnalausra varðandi styrk til þýðingar barnabóka yfir á íslenskt táknmál, dags. 19.10.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2023.
07
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tilnefningar í vatnasvæðanefndir, dags. 01.11.22.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Stellu Stefánsdóttur, formann umhverfisnefndar sem aðalfulltrúa og Eirík Þorbjörnsson, fulltrúa í umhverfisnefnd sem varafulltrúa í vatnasvæðanefnd.
Fylgiskjöl
08
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi tillögur um breytingar á lögum um Jöfnunarsjóð, dags. 07.11.22.
Lögð fram.
09
Drög að skýrslu Klappa varðandi sjálfbærnisuppgjör Garðabæjar 2021, dags. í nóvember 2022.
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir drögum að sjálfbærnisuppgjöri Garðabæjar fyrir árið 2021. Í skýrslunni er gerð grein fyrir losun gróðurhúsalofttegunda frá þeim losunarþáttum sem teknir hafa verið inn í losunarbókhaldið við rekstur Garðabæjar. Ekki er gerð grein fyrir losun gróðurhúsalofttegunda frá þeim rekstrareiningum sem Garðabær hefur ekki yfirráð yfir þrátt fyrir að bærinn eigi hagsmuna að gæta af rekstri þeirra. Þar undir fellur til dæmis losun frá framræstu landi sem notað er til uppbyggingar.
Bæjarráð að vísa skýrslunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
10
Erindi Íslenskra staðla varðandi fjármögnun á þýðingu umhverfisstjórnunarstaðals ÍST EN ISO 14001, dags. 25.10.22.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
11
Erindi Lionsklúbbs Álftaness varðandi afnot af íþróttasal fyrir Lionsþing 2024, dags. 09.11.22.
Í erindinu er farið fram á afnot af sal Íþróttahúss Álftaness dagana 9. maí til og með 12. maí 2024. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
12
Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi fræðslu um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga, dags. 09.11.22.
Lögð fram og vísað til kynningar meðal kjörinna fulltrúa og starfsmanna Garðabæjar.
Fylgiskjöl
13
Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi Evrópsku Nýtnivikuna, dags. 07.11.22.
Lögð fram og vísað til kynningar í stofnunum bæjarins.
Fylgiskjöl
14
Bréf Stígamóta varðandi framlag til starfseminnar árið 2023, dags. 31.10.22.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.