Hraungata 12 - Umsókn um byggingarleyfi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
41. (2048). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þorgeiri Inga Haraldssyni, kt. 260979-5589, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús við Hraungötu 12.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
1. fundur
Lögð fram tillaga að gluggalausu geymslurými ofan við húsið sem gerir ráð fyrir gegndræpu sandlagi undir hellulögn sem veitir vatni út í jarðveg innan lóðar. Skipulasstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr hvað viðbyggingu utan byggingareits og undir bílastæði varðar. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
13. (872). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Hraungötu 12, þar sem farið er fram á stækkun byggingarreits vegna rýmis neðanjarðar. (Mál nr. 2006070)
Bæjarráð Garðabæjar
04
36. (1944). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Hraungötu 12, þar sem farið er fram á stækkun byggingarreits vegna rýmis neðanjarðar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
9. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi sem nær til lóðarinnar Hraungata 12 og gerir ráð fyrir því að byggingarreitur fyrir neðanjarðarrými verði heimilaður undir bílastæðum á lóðinni. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í umsögn deiliskipulagshöfundar er umsókninni hafnað.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
08
9. fundur
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.