13. (872). fundur
13. (872). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
17.09.2020
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Björg Fenger
- Gunnar Einarsson
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Ingvar Arnarson
- Valborg Ösp Á. Warén
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 8/9 ´20.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., Covid19 - eftirfylgni með stöðu barna.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., Covid19 - eftirfylgni með stöðu barna.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 6. tl., bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar varðandi ársreikning 2019.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., Covid19 - eftirfylgni með stöðu barna.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., Covid19 - eftirfylgni með stöðu barna
Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., Covid19 - eftirfylgni með stöðu barna og 6. tl., bréf Styrktarsjóðs Garðasóknar varðandi ársreikning 2019.
Fundargerðin sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 15/9 ´20.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., yfirlit frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga.
Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., yfirlit frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 23. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi aðgerðaráætlun í plastmálum og 26. tl., afgreiðslu umhverfisnefndar varðandi tillögu að friðlýsingu Garðahrauns og strandlengju Álftaness.
Ingvar Arnarson, ræddi 16. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðar fyrir búsetukjarna við Brekkuás og 26. tl., afgreiðslu umhverfisnefndar varðandi tillögu að friðlýsingu Garðahrauns og strandlengju Álftaness.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 23. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi aðgerðaráætlun í plastmálum, og 4. tl., yfirlit frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga.
Gunnar Einarsson, ræddi 16. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðar fyrir búsetukjarna við Brekkuás og 4. tl., yfirlit frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., yfirlit frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., yfirlit frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., yfirlit frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga.
Fundargerðin sem er 29. tl. er samþykkt samhljóða.
2.11 - 2008336 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis 5.04 Vþ í Urriðaholti.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis á 5.04 Vþ í Urriðaholti fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Einnig skal tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd. Tillagan skal jafnframt kynnt öðrum sveitarfélögum sem kunna að eiga hagsmuna að gæta vegna skipulagsins. (Mál nr. 2008336)
Fylgiskjöl
2.12 - 1811125 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Kynningin skal auglýst með áberandi hætti. (Mál nr. 1811125)
Fylgiskjöl
- undefined.pdf
- 04-087N-(90)1.01 Deiliskipulagsuppdráttur_forkynning 20200917.pdf
- 04-087N-(90)1.02 Yfirlitsuppdráttur_forkynning 20200917.pdf
- 04-087N-(90)1.03 Skýringaruppdráttur_forkynning 20200917.pdf
- 04-087N-(90)1.05 Snið_forkynning 20200917.pdf
- 04-087N-(90)1.04 Skýringaruppdráttur jarðsprungur_forkynning 20200917.pdf
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 9 (10.9.2020) - Urriðaholt Norðurhluti 4 - deiliskipulag.pdf
- A1184-127-U01-Norðurhluti4-greinargerð-forkynning.pdf
- Gróðurgreining_Urriðaholt-norðurhluti-augly.pdf
2.13 - 2006070 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 12.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Hraungötu 12, þar sem farið er fram á stækkun byggingarreits vegna rýmis neðanjarðar. (Mál nr. 2006070)
Fylgiskjöl
2.14 - 2007640 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis vegna lóðarinnar við Frjóakur 9.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,GE) tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um stækkun og opnun á kjallararými o.fl. í einbýlishúsinu að Frjóakri 9, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Frjóakurs 7 og 10 og Byggakurs 18, 20, 22 og 24. (Mál nr.2007640)
Þrír sitja hjá (SDS,IA,VÖÁW).
Björg Fenger, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
2.15 - 2006153 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi erindi Lækjarkórs um heimild til að láta vinna tillögu að deiliskipulagi fyrir Sveinskotsreit.
Bæjarstjórn samþykkir að heimila Lækjarkór ehf. landeigenda lands úr Sveinskoti milli byggðar í Asparholti og hesthúsasvæðis Sóta að láta vinna tillögu að deiliskipulagi svæðisins á sinn kostnað samkvæmt 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga. Skipulagslýsing liggur fyrir. (Mál nr. 2006153)
Fylgiskjöl
2.16 - 2005435 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðarinnar við Brekkuás 2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna. Í tillögunni er gert ráð fyrir að lóðin við Brekkuás 2 verði breytt úr leikskólalóð í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk. (Samfélagsþjónusta) (Mál nr. 2005435)
Fylgiskjöl
2.17 - 2008275 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna raðhúsalóðanna við Maríugötu 23-29.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um breytingu þakhalla, hæðarkóta og legu bílastæða raðhúsalóðanna við Maríugötu 23-29, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Maríugötu 17-21, 26-28, 30-32, 31-37 og 34-40. (Mál nr.2008275)
Fylgiskjöl
2.18 - 2007394 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts vegna raðhúsalóðanna við Maríugötu 31-37.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um breytingu á húsagerð, lóðarmörkum, byggingarreitum og lóðarstærðum raðhúsalóðanna við Maríugötu 31-37 sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Maríugötu 23-29, 30-32, og 34-40. (Mál nr. 2007394)
Fylgiskjöl
2.20 - 2007239 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 42.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna. Í tillögunni er gert ráð fyrir að íbúðum í fjölbýlishúsinu við Urriðaholtsstræti 42 fjölgi úr 9 í 10.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 858.356 á íbúð m.v. BVT 741,4 stig í september 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi. (Mál nr. 2007239)
Fylgiskjöl
2.21 - 2003086 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu umsóknar um byggingarleyfi vegna framkvæmda á lóðinni við Lyngmóa 3.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna lokunar svala íbúða á 1 hæð og framkvæmda við pall við fjölbýlishúsið að Lyngmóum 3. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og barst ein athugasemd þar sem vakin var athygli á að framkvæmdir væru þegar hafnar og af þeim stafi óþægindi og óþrifnaður. Mál nr. 2003086)
Fylgiskjöl
2.26 - 1902106 - Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi tillögu um friðlýsingu Garðahrauns og strandlengjunnar á Álftanesi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu umhverfisnefndar um að leita eftir því við Umhverfisstofnun að strandlengjan á Álftanesi og Garðahraun efra, það sem ekki er nú þegar friðlýst, fari í friðlýsingarferli. (Mál nr. 1902106)
Fylgiskjöl
03
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 2/9 ´20.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., skýrslur grunnskólanna 2019-2020, 2. tl., skólabyrjun haustið 2020, 3. tl., grunnskólastarf á tímum kórónuveirunnar, 4. tl., menntadag í Garðabæ 2020, 5. tl., forvarnarviku í Garðabæ og 6. tl., foreldrarölt í Garðabæ.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., menntadag í Garðabæ 2020. Þá spurði Ingvar um stöðu kjarasamninga við kennara.
Gunnar Einarsson, ræddi stöðu kjarasamninga við kennara.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð skipulagsnefndar frá 10/9 ´20.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., kynningu á tillögu að deiliskipulagi fyrir norðurnes á Álftanesi og 5. tl., tillögu að breytingu á aðalskipulagi í tengslum við tillögur að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hnoðraholt, Vetrarmýri og nýtt deiliskipulag í Rjúpnadal.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/9 ´20.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., störf umhverfishópa ungmenna sumarið 2020, 3. tl., útbreiðslu kerfils í Garðabæ og 5. tl., kvartanir vegna fjölgunar á mávum.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., störf umhverfishópa ungmenna sumarið 2020, 3. tl., útbreiðslu kerfils í Garðabæ, 4. tl., mengunarmælingar, 6. tl., lausagöngu katta og 8. tl., útivistarstíg frá Vífilsstaðavatni að Grunnuvatnaskarði.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., lausagöngu katta í Garðabæ.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 7. tl., lausagöngu katta í Garðabæ og 8. tl., útisvistarstíg frá Vífilsstaðavatni að Grunnuvatnaskarði.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi viðurkenningar umhverfisnefndar fyrir snyrtilegt umhverfi og þakkaði umhverfisnefnd fyrir vel unnið verk.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð stjórnar SSH frá 7/9 ´20.
Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi 17. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk og spurði um kærur vegna útboða. Þá ræddi Sara Dögg 8. tl. undirbúning Borgarlínu.
Ingvar Arnarson, ræddi 6. tl., stofnun verkefnaráðs varðandi Lyklafellslínu og 9. tl., skilavegi.
Gunnar Einarsson, ræddi 6. tl., stofnun verkefnaráðs varðandi Lyklafellslínu, 3. tl., samgöngusáttmálann 8. tl., undirbúning Borgarlínu, 9. tl., skilavegi og 17. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk og upplýsti um stöðu kærumála.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 3. tl. samgöngusáttmálann 8. tl., undirbúning Borgarlínu og 6. tl., stofnun verkefnaráðs varðandi Lyklafellslínu.
Gunnar Einarson, ræddi að nýju 3. tl., samgöngusáttmálann og 8. tl., undirbúning Borgarlínu.
Fundargerðin lögð fram.
08
Tillaga að undirbúningi íþróttahátíðar og menningarhátíðar í fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri
Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hann flytur ásamt Björgu Fenger, formanni íþrótta- og tómstundaráðs og Gunnari Val Gíslasyni, formanni menningar- og safnanefndar.
„Bæjarstjórn samþykkir að hafinn verði undirbúningur að íþróttahátíð og menningarhátíð í Garðabæ á vormánuðum 2022 í nýju fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Íþrótta- og tómstundaráði og menningar- og safnanefnd er falið að hafa umsjón með undirbúningi hátíðanna.“
Greinargerð:
Gert er ráð fyrir að nýtt fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri verði tilbúið til notkunar í desember 2021 og fullklárað í febrúar 2022. Mikilvægt er að hefja undirbúning að formlegri opnun hússins. Gert er ráð fyrir að íþrótta- og tómstundaráð og menningar- og safnanefnd verði með málið eftir atvikum á dagskrá sinni á meðan á undirbúningi stendur. Við undirbúning verði lögð áhersla á að undirstrika möguleika á fjölnota notkun hússins og að víðtæk samvinna og samráð verði við hina ýmsu hagsmunaaðila. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2021 og 2022 verði tekið tillit til nauðsynlegrar fjárfestingar í búnaði og tækjum vegna fyrirhugaðra hátíða.
Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn gagnrýnir harðlega forgangsröðun meirihlutans með þessari tillögu og telur það fjárhagslega óábyrgt ekki síst í ljósi stöðunnar að leggja fram tillögu um ótilgreind útgjöld árin 2021 og 2022 vegna hátíðarhalda meirihlutans í aðdraganda næstu sveitarstjórnarkosninga. Tillögunni fylgir engin greinargerð um umfang hátíðarinnar sem hægt er að leggja mat á.
Bara fyrir árið 2020 er áætlað tap Garðabæjar um 1,3 ma. kr. og alveg óljóst hvernig staðan verður árið 2022. Á sama tíma og bókun liggur fyrir bæjarstjórn, þar sem þrýst er á ríkisvald til að mæta erfiðri stöðu Garðabæjar, óskar meirihlutinn hér eftir óútfylltum tékka í fjárhagsáætlunum næstu tveggja ára til að fagna opnun á íþróttahúsi í Vetrarmýri sem þegar er farið að kosta meira en áætlað var. Garðabæjarlistinn getur með engu móti samþykkt slíka tillögu.“
Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu og bókun.
Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu og bókun.
Valborg Ösp Á Warén, ræddi framkomna tillögu og bókun.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi framkomna tillögu bókun.
Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu og bókun.
Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls að nýju
Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,VÖÁW)
09
Tillaga Garðabæjarlistans um árshlutauppgjör.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu um breytta framsetningu árshlutauppgjörs sveitarfélagsins um að þeim fylgi ítarlegri greinargerð en nú er. Í greinargerð skal, gerð grein fyrir fjárhagslegri stöðu sviða, stöðu á lóðasölu og viðaukum, þar sem við á. Árshlutauppgjör skal gefa skýra og gagnsæja mynd af fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og lagt fram á 3ja mánaða fresti.“
Greinargerð
Við í Garðabæjarlistanum teljum mikilvægt að við fjárhagsáætlunargerð liggi fjárhagsleg staða sveitarfélagsins fyrir, með eins gagnsæjum og upplýsandi hætti og mögulegt er. Í því felst að gerð sé grein fyrir stöðu hvers sviðs með greinagerð. Slíkt vinnulag styður enn frekar við aðhald og fagleg vinnubrögð stjórnsýslunnar og meðvitund um þá fjármuni sem eru undir. Þegar hefur komið fram að slíkt þurfi að styrkja, í úttekt Haraldar á stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Fyrirkomulag upplýsingagjafar um fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins, eins og hún er lögð fram, gefur almennum bæjarfulltrúa ekki nægjanlega yfirsýn yfir stöðuna að okkar mati. Fjárhagsáætlunargerð er vandasöm og til þess að vel takist til og til þess að bæjarfulltrúar geti tekið upplýstar ákvarðanir um forgangsröðun fjármagns skiptir máli að hafa eins góða yfirsýn og mögulegt er. Og aldrei er erindið brýnna en í þeim aðstæðum sem við okkur blasa nú.
Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.
Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu að nýju.
Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarstjóra.
Gunnar Valur Gíslsson, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa framkominni tillögu til bæjarstjóra.