Tillaga Garðabæjarlistans um árshlutauppgjör.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (872). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Garðabæjarlistinn leggur fram tillögu um breytta framsetningu árshlutauppgjörs sveitarfélagsins um að þeim fylgi ítarlegri greinargerð en nú er. Í greinargerð skal, gerð grein fyrir fjárhagslegri stöðu sviða, stöðu á lóðasölu og viðaukum, þar sem við á. Árshlutauppgjör skal gefa skýra og gagnsæja mynd af fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og lagt fram á 3ja mánaða fresti.“
Greinargerð
Við í Garðabæjarlistanum teljum mikilvægt að við fjárhagsáætlunargerð liggi fjárhagsleg staða sveitarfélagsins fyrir, með eins gagnsæjum og upplýsandi hætti og mögulegt er. Í því felst að gerð sé grein fyrir stöðu hvers sviðs með greinagerð. Slíkt vinnulag styður enn frekar við aðhald og fagleg vinnubrögð stjórnsýslunnar og meðvitund um þá fjármuni sem eru undir. Þegar hefur komið fram að slíkt þurfi að styrkja, í úttekt Haraldar á stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Fyrirkomulag upplýsingagjafar um fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins, eins og hún er lögð fram, gefur almennum bæjarfulltrúa ekki nægjanlega yfirsýn yfir stöðuna að okkar mati. Fjárhagsáætlunargerð er vandasöm og til þess að vel takist til og til þess að bæjarfulltrúar geti tekið upplýstar ákvarðanir um forgangsröðun fjármagns skiptir máli að hafa eins góða yfirsýn og mögulegt er. Og aldrei er erindið brýnna en í þeim aðstæðum sem við okkur blasa nú.
Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.
Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu að nýju.
Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna tillögu lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarstjóra.
Gunnar Valur Gíslsson, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa framkominni tillögu til bæjarstjóra.