Stórtónleikar í fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
33. fundur
Rætt um gang mála varðandi undirbúning á stórtónleikum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
24. fundur
Formaður skýrði frá samþykkt bæjarstjórnar þann 17. september sl. um að hafinn verði undirbúningur að íþróttahátíð og menningarhátíð á vormánuðum 2022 í fjölnota íþróttahúsinu í Vetrarmýri. Íþrótta- og tómstundaráði og menningar- og safnanefnd er falið að hafa umsjón með undirbúningi hátíðanna.
Vísað til áframhaldandi umfjöllunar á næsta fundi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
13. (872). fundur
Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu er hann flytur ásamt Björgu Fenger, formanni íþrótta- og tómstundaráðs og Gunnari Val Gíslasyni, formanni menningar- og safnanefndar.
„Bæjarstjórn samþykkir að hafinn verði undirbúningur að íþróttahátíð og menningarhátíð í Garðabæ á vormánuðum 2022 í nýju fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Íþrótta- og tómstundaráði og menningar- og safnanefnd er falið að hafa umsjón með undirbúningi hátíðanna.“
Greinargerð:
Gert er ráð fyrir að nýtt fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri verði tilbúið til notkunar í desember 2021 og fullklárað í febrúar 2022. Mikilvægt er að hefja undirbúning að formlegri opnun hússins. Gert er ráð fyrir að íþrótta- og tómstundaráð og menningar- og safnanefnd verði með málið eftir atvikum á dagskrá sinni á meðan á undirbúningi stendur. Við undirbúning verði lögð áhersla á að undirstrika möguleika á fjölnota notkun hússins og að víðtæk samvinna og samráð verði við hina ýmsu hagsmunaaðila. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2021 og 2022 verði tekið tillit til nauðsynlegrar fjárfestingar í búnaði og tækjum vegna fyrirhugaðra hátíða.
Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi framkomna tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Garðabæjarlistinn gagnrýnir harðlega forgangsröðun meirihlutans með þessari tillögu og telur það fjárhagslega óábyrgt ekki síst í ljósi stöðunnar að leggja fram tillögu um ótilgreind útgjöld árin 2021 og 2022 vegna hátíðarhalda meirihlutans í aðdraganda næstu sveitarstjórnarkosninga. Tillögunni fylgir engin greinargerð um umfang hátíðarinnar sem hægt er að leggja mat á.
Bara fyrir árið 2020 er áætlað tap Garðabæjar um 1,3 ma. kr. og alveg óljóst hvernig staðan verður árið 2022. Á sama tíma og bókun liggur fyrir bæjarstjórn, þar sem þrýst er á ríkisvald til að mæta erfiðri stöðu Garðabæjar, óskar meirihlutinn hér eftir óútfylltum tékka í fjárhagsáætlunum næstu tveggja ára til að fagna opnun á íþróttahúsi í Vetrarmýri sem þegar er farið að kosta meira en áætlað var. Garðabæjarlistinn getur með engu móti samþykkt slíka tillögu.“
Ingvar Arnarson, ræddi framkomna tillögu og bókun.
Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu og bókun.
Valborg Ösp Á Warén, ræddi framkomna tillögu og bókun.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi framkomna tillögu bókun.
Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu og bókun.
Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls að nýju
Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,VÖÁW)