Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 2/9 ´20.
Málsnúmer 2008028F
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (872). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., skýrslur grunnskólanna 2019-2020, 2. tl., skólabyrjun haustið 2020, 3. tl., grunnskólastarf á tímum kórónuveirunnar, 4. tl., menntadag í Garðabæ 2020, 5. tl., forvarnarviku í Garðabæ og 6. tl., foreldrarölt í Garðabæ.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., menntadag í Garðabæ 2020. Þá spurði Ingvar um stöðu kjarasamninga við kennara.
Gunnar Einarsson, ræddi stöðu kjarasamninga við kennara.
Fundargerðin lögð fram.